Erlendar eignir lífeyrissjóðanna nú 28% af heildareignum 9. júlí 2009 12:01
Erlendar eignir lífeyrissjóða námu 485 milljörðum kr. í maílok, sem svarar til 28% af hreinni eign þeirra. Greining Íslandsbanka segir að lífeyrissjóðir landsmanna séu nú hægt og bítandi að rétta úr kútnum eftir það þunga högg sem þeim var greitt þegar fjármála- og gjaldeyriskreppan skall á í fyrrahaust. Enn er þó raunvirði eigna sjóðanna talsvert minna en var fyrir hrun. Samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans nam hrein eign lífeyrissjóðanna 1.733 milljörðum kr. í lok maí. Eignin jókst um ríflega 22 milljarða kr. í mánuðinum. Munaði þar mestu um tæplega 15 milljarða kr. aukningu á erlendum eignum sjóðanna, en maí var hagfelldur mánuður á erlendum hlutabréfamörkuðum. Hrein eign lífeyrissjóðanna í krónum talið er nú að nálgast það hámark sem hún náði í fyrrasumar. Til að mynda var eignin í maílok 3,8% minni en á sama tíma í fyrra að nafnvirði. Að raungildi hafði hrein eign lífeyrissjóðanna hins vegar rýrnað um tæplega 14% í lok maí frá sama mánuði árið 2008. Þar sem iðgjaldagreiðslur inn í kerfið eru umtalsvert meiri en lífeyrisgreiðslur hefur ávöxtun sjóðanna verið töluvert lakari en ofangreindar tölur gefa til kynna. Í ljósi þess að stærstur hluti innlends hlutabréfamarkaðar er að engu orðinn og svipaða sögu má segja um verulegan hluta eignar sjóðanna í innlendum fyrirtækjaskuldabréfum ætti það varla að koma á óvart.Hátt innlent vaxtastig og gengishrun krónu, sem hækkar verðgildi erlendra eigna í krónum talið, hefur hins vegar dregið úr högginu á lífeyriskerfið. Miðað við spá fjármálaráðuneytisins um að landsframleiðslan (VLF) í ár verði ríflega 1.400 milljarðar kr. nam hrein eign sjóðanna í lok maí u.þ.b. 120% af áætlaðri VLF, sem má teljast harla gott á alþjóðlega vísu. Enn eru þó ekki öll kurl komin til grafar varðandi innlendar eignir lífeyrissjóðanna og kann staðan því að breytast nokkuð á næstunni.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Sjá meira