Þúsund milljarðar í vanskilum 26. október 2009 18:30
Rúmlega eittþúsund milljarðar sem lánaðir hafa verið til einkahlutafélaga eru í vanskilum. Ýmislegt bendir til að útlánastefna gömlu bankanna hafi var óábyrg segir seðlabankastjóri sem telur að fari allt á versta veg geti mikil útlán bankanna til einkahlutafélaga gert endurreisnina erfiðari en ella. Í fjármálastöðugleikaskýrslu Seðlabankans segir að erfitt sé að leggja mat á helstu áhættuþætti í fjármálakerfinu þar sem enn ríki óvissa um eignir, fjármögnun og eignarhald fjármálafyrirtækja. Í skýrslunni er dregin fremur svört mynd af ástandi fyrirtækja hér á landi. Útistandandi lán lánastofnana til innlendra fyrirtækja námu rúmlega 4600 milljörðum króna í lok júní. Þar af námu lán til eignarhaldsfélaga um 1800 milljörðum en flest þeirra eru gengisbundin. Vanskil meðal eignarhaldsfélaga eru meiri en gengur og gerist en um 1026 milljarðar eru í vanskilum og þar af rúmir 820 milljarðar í alvarlegum vanskilum. Um helmingur lána til eignarhaldsfélaga eru kúlulán og koma vanskil því ekki fram fyrr en að lánstíma loknum. Vanskil gætu því verið vanmetin. Um 55% lánanna eru á gjalddaga næstu tvö árin. Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir of fljótt að segja til um á þessum tímapunkti hvort útlánastefna gömlu bankana geri endurreisninni erfiðara fyrir. „Hún gæti gert það ef að illa fer og að vanskilin verði töluvert meiri en talið var þegar eignirnar voru færðar yfir." Þá segir Már ýmislegt benda til þess að óábyrgt hafi verið lána svona mikið til eignarhaldsfélaga.
Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira