Már: Fleiru ábótavant hjá bönkunum en viðskiptalíkani 26. október 2009 15:30 „
Ekki er ólíklegt að yfirstandandi rannsókn á falli bankanna muni leiða í ljós að fleiru hafi verið ábótavant en viðskiptalíkani þeirra og áhættustýringu, svo sem gæðum eigna og stjórnháttum." Þetta kemur fram í inngangi Más Guðmundssonar seðlabankastjóra að ritinu Fjármálastöðugleiki 2009 sem Seðlabankinn hefur birt. Þar segir einnig: „Þá hafa áætlanir um endurheimtur úr þrotabúum bankanna vakið spurningar um gæði reikningsskila og upplýsinga kennitalna um fjárhagslegan styrk þeirra. Það voru hins vegar erfiðleikar við endurfjármögnun erlendra eigna bankanna sem hleyptu hruninu af stað. Sökum stærðar bankanna var það síðan íslenskum stjórnvöldum ofviða að koma þeim til aðstoðar á úrslitastundu." Í inngangi sínum fer Már Guðmundsson ítarlega yfir þróunina fyrir og eftir bankahrunið og ástæður þess hve illa fór fyrir Íslandi í fjármálakreppunni. Einnig ræðir hann um aðgerðir sem nauðsynlegar voru eftir hrunið, þar á meðal hvað greiðslumiðlunina við útlönd áhrærir. Greiðslumiðlun gagnvart útlöndum varð hins vegar fyrir miklu hnjaski við fall bankanna, meðal annars vegna aðgerða breskra stjórnvalda. Með margvíslegum aðgerðum ...tókst þó að koma erlendri greiðslumiðlun aftur í gang og er hún nú að verulegu leyti komin í eðlilegt horf," segir Már. Það kemur einnig fram í máli seðlabankastjóra að þótt endurreisn bankanna sé vel á veg komin er töluvert í land að hið nýja íslenska fjármálakerfi hafi tekið á sig þá mynd sem búið verður við til frambúðar. „Bankarnir starfa enn í skjóli gjaldeyrishafta og hafa mjög takmarkaðan aðgang að erlendri fjármögnun. Nú þegar fyrsta endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins virðist í höfn er orðið tímabært að hefja afnám gjaldeyrishaftanna," segir Már. „Eftir því sem endurreisn efnahags og fjármálalífs vindur fram og aðstæður batna á alþjóðlegum fjármálamörkuðum má síðan binda vonir við að aðgangur Íslands að erlendum lánamörkuðum opnist á ný og að bankarnir geti siglt í kjölfarið." Már segir að tengsl Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins er meðal álitaefna sem skoða þarf vandlega hér á landi á næstunni. Rökin fyrir mun nánara samstarfi seðlabanka og fjármálaeftirlits tengjast þeim annmörkum sem áður voru nefndir varðandi regluverk og eftirlitsstarfsemi. Til að seðlabanki geti gegnt hlutverki sínu sem lánveitandi til þrautavara þarf hann á hverjum tíma að búa yfir upplýsingum til þess að leggja mat á hvort fjármálafyrir tæki í erfiðleikum stendur frammi fyrir eiginfjárvanda eða greiðsluþroti. „Hann þarf líka að þekkja vel tiltæk veð. Þá er mikilvægt að hann geti áttað sig á stórum útlánaáhættum í kerfinu í heild og lagt mat á hættuna af smiti milli fjármálastofnana. Þetta þýðir að seðlabanki þarf að hafa aðgang að svipuðum upplýsingum og fjármálaeftirlit býr yfir. Komi síðan til þess að eiginfjárhlutföll verði með einhverju marki breytileg í ljósi útlána- og eignasveiflna, mun þurfa að tengja saman tæki fjármálaeftirlits og þjóðhagslega yfirsýn seðlabanka," segir Már. Sjá viðhengi fyrir neðan.
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira