Beat bjartsýnn á að gengi krónunnar styrkist 29. september 2009 14:31
Beat Siegenthaler sérfræðingur TD Securities í nýmarkaðsríkjum er bjartsýnn á að gengi krónunnar muni styrkjast á næsta ári. Þetta kemur fram í fréttabréfi Siegenthaler til viðskiptavina sinna. Í bréfinu segir Siegenthaler að hann telji að gengi krónunnar geti farið í undir 170 kr. fyrir evruna en það stendur núna í rúmlega 181 kr. Yrði því um rúmlega 6% styrkingu að ræða að mati Siegenthaler. Hann er á sömu skoðun og Seðlabankinn hvað gengið varðar og notar svipuð rök fyrir áliti sínu. Eins og áður hefur komið fram í fréttum er Siegenthaler vel kunnur íslenskum efnahagsmálum en undir hans stjórn var TD Securities umfangsmikið á krónubréfamarkaðinum hérlendis áður en sá markaður hrundi í kjölfar bankahrunsins s.l. haust. Krónubréfin eru nú sem óðast að hverfa enda hefur þeim verið skipt yfir í ríkisbréf í kjölfar gjaldeyrishaftanna. Erlendir aðilar áttu alls 54% af útistandandi ríkisbréfum í lok júlí og 76% af ríkisvíxlum. Þessir aðila fylgjast grannt með skrifum Siegenthaler og ef hann álítur að gegni krónunnar muni styrkjast má reikna með að þeir verði ekki jafnáfjáðir og áður að skipta sínum krónum yfir í erlenda mynt. Þetta gæti svo aftur leitt til þess að ekki verði jafnmikill þrýstingur og áður var talið á gengið þegar gjaldeyrishöftunum verður aflétt en hefja á þann feril nú í nóvember.
Mest lesið Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira