Ár er liðið frá upphafi bankahrunsins á Íslandi Sólveig Bergmann skrifar 29. september 2009 12:32
Í dag er ár frá því ljóst varð að Glitnir stóð á brauðfótum. Hann varð fyrstur hinna íslensku banka til að verða þjóðnýttur en fall hans markar endalok íslensku útrásarinnar og upphaf þeirra efnhagsþrenginga sem þjóðin finnur á eigin skinni. Þann tuttuguasta og níunda september var tilkynnt að ríkið myndi eignast 75 prósenta hlut í Glitni og greiða fyrir 84 milljarða sem teknir væru af gjaldeyrisvaraforða þjóðarinnar. Ástæðan var rekin til falls Lehman Brothers og lausafjárkreppu í heiminum. Þetta sagði Davíð Oddsson þáverandi Seðlabankastjóri á blaðamannafundi þann dag en stjórnarformaður Glitnis, Þorsteinn Már Baldvsinsson, fullyrti að Seðlabankinn hefði stillt forsvarsmönnum bankans upp við vegg. Áhrifanna gætti víða, enda var Glitnir með rekstur í níu erlendum ríkjum. Fyrir ári voru Íslendingar einnig tengdir vel þekktum dönskum félögum og fall Glitnis og greiðslustöðvun Stoða, sem var stærsti hluthafi bankans, varð til þess að viðvörunarljós blikkuðu á fjármálamörkuðum og í stjórnarherbergjum í Danmörku. Hér heima höfðu þúsundir manna lagt ævisparnaðinn í hlutabréf í Glitni eða í hlutabréfasjóði sem höfðu fjárfest í bréfum í bankanum. Atburðarrásin sem hófst með falli Glitnis varð þó lygilegri en flesta hafði órað fyrir og ráðamenn þjóðarinnar kepptust við að lægja öldur ótta og tortryggni. Þáverandi forsætisráðherra, Geir Haarde, sagði að ekki væri búist við því að til samskonar aðgerða þyrfti að grípa gagnvart Kaupþingi og Landsbankanum. Yfirtakan á Glitni hefði verið tekin til þess að koma ró á fjármálamarkaðinn. Hann sagði einnig að ef vel gengi í rekstrinum myndi ríkið losa sig við hlutinn sem fyrst og vonaðist jafnfram til þess að ríkið geti haft af því einhvern arð. Fáeinum dögur síðar féll Landsbankinn, Glitnir fór sömu leið og svo Kaupþing. Útrásin íslenska var liðin undir lok með geigvænlegum afleiðingum fyrir íslenska þjóð. Ítarlega verður fjallað um upphaf bankahrunsins í kvöld að loknum fréttum Stöðvar 2 í þættinum Ísland í dag.
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira