Íbúða- og bílakaup verða áfram í lágmarki 29. september 2009 12:13
Aðeins 2,8% Íslendinga telja það mjög líklegt eða frekar líklegt að þeir munu kaupa hús eða íbúða á næstu 6 mánuðum. Hefur þetta hlutfall ekki áður mælst jafn lágt í núverandi kreppu. Um 7,5% telja það líklegt eða frekar líklegt að þeir muni kaupa bíl á sama tímabili. Fjallað er um málið í Morgunkorni Íslandsbanka en fyrrgreindar staðreyndir koma fram í nýrri könnun Capacent Gallup. Í september í fyrra var hlutfall þeirra sem ætluðu í íbúðakaup 5,5% og í september 2007 eða nálægt hápunktinum á húsnæðismarkaðinum í síðustu uppsveiflu voru 8,3% sem töldu það mjög líklegt eða frekar líklegt að þeir myndu kaupa hús eða íbúða á næstu sex mánuðum. Hlutfallið nú er einungis þriðjungur þess sem það þá var. Niðurstöðurnar koma ekki á óvart en veltan á íbúðamarkaðinum hefur verið afar lítil undanfarið og fjöldi kaupsamninga í algeru lágmarki. Niðurstöður spurningakönnunarinnar bera það með sér að framundan er magur vetur á þessum markaði. Enda ekki við öðru að búast þar sem varla má reikna með því að hagur heimilanna vænkist þennan veturinn. Spáð er að atvinnuleysi fari vaxandi, kaupmáttur launa rýrni, skattar fari hækkandi, vextir verði áfram háir og gengi krónu verði áfram lágt. Þá er við því að búast að íbúðaverð fari lækkandi á næstunni og vilja eflaust fáir festa eigið fé sitt í húsnæði við slíkar aðstæður. Um 7,5% Íslendinga telja það mjög líklegt eða frekar líklegt að þeir muni kaupa bíl á næstu 6 mánuðum samkvæmt ofangreindri könnun Capacent Gallup. Er þetta nokkuð lægra hlutfall en í júní þegar þessi könnun var síðast gerð, en þá töldu 10,8% mjög líklegt eða frekar líklegt að þeir myndu kaupa bíl á næstu 6 mánuðum. Breytingin er mikil frá því á árinu 2007 en þá töldu 19,3% mjög líklegt eða frekar líklegt að þeir myndu kaupa bíl á næstu 6 mánuðum. Er þetta hlutfall nú með því lægsta sem mælst hefur í þessari kreppu en bifreiðasala og þá sérstaklega sala á nýjum bifreiðum hefur verið í mikilli lægð undanfarið. Í ágúst voru nýskráðir 189 nýjar bifreiðar samanborið við 2.141 í sama mánuði 2007. Samdrátturinn á þessu tímabili er 91%.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira