Samorka hraunar yfir Sjónarrönd ehf. 1. september 2009 11:19
Samorka, samtök orku- og veitufyrirtækja, gagnrýna harðlega áfangaskýrslu þá sem Sjónarrönd ehf. vann fyrir fjármálaráðuneytið um arðsemi íslenskra orkufyrirtækja. Segir m.a. í tilkynningu frá Samorku að nálgun Sjónarrandar hafi verið fráleit, rangar ályktanir dregnar og gjörólík fyrirtæki borin saman. Samorka segir að arðsemi af raforkusölu hafi verið ágæt hér á landi, samkvæmt samantekt Melland Partners að beiðni Landsvirkjunar, og ef horft er til arðsemi af rekstri Nesjavallavirkjunar Orkuveitu Reykjavíkur. „Meðalarðsemi eigin fjár Landsvirkjunar var 17,2% árin 2003 til 2007, sem er mun hærra en gerist í Bandaríkjunum og Evrópu, ef marka má nýlega áfangaskýrslu Sjónarrandar ehf. fyrir fjármálaráðuneytið," segir í tilkynningunni. „Svipað má segja ef horft er á arðsemi heildarfjármagns Nesjavallavirkjunar Orkuveitu Reykjavíkur, sem er um 14%, en arðsemi bandarískra orkufyrirtækja var á þessum tíma að jafnaði um 10% og evrópskra um 13%. Þá segir HS Orka óhætt að fullyrða að arðsemi fyrirtækisins af orkusölu til stóriðju hafi verið nokkuð meiri en af annarri starfsemi fyrirtækisins og hafi jafnframt verið lykillinn að lágu raforkuverði undanfarinna ára. Almenn arðsemi íslenskra veitufyrirtækja er hins vegar ekki há, en fyrirtækin eru flest alfarið í eigu opinberra aðila og áherslan hefur gjarnan verið á lág verð og öfluga þjónustu hita-, vatns-, fráveitna, fremur en háa arðsemi fjármagns. Sama virðist raunar gilda um sölu á raforku til almennings, en hún er t.d. um fimmfalt dýrari í Kaupmannahöfn en í Reykjavík. Á dögunum skilaði Sjónarrönd ehf. áfangaskýrslu um arðsemi af raforkusölu til stóriðju, sem unnin var fyrir fjármálaráðuneytið. Þar eru meðal annars dregnar ályktanir um lága arðsemi af orkusölu til stóriðju með því að horfa til arðsemi af rekstri veitufyrirtækja, sem er algerlega fráleit nálgun. Jafn fráleitt er að bera síðan saman almenna arðsemi íslenskra orkufyrirtækja (sem mörg eru jafnframt í ýmis konar veiturekstri) við arðsemi orkufyrirtækja sem skráð eru á hlutabréfamarkaði í Evrópu og Bandaríkjunum. Í áfangaskýrslu Sjónarrandar er notast við rangar tölur, mismunandi uppgjörsaðferðum blandað saman, ólík tímabil borin saman, rangar ályktanir dregnar, gjörólík fyrirtæki borin saman sem væru þau sambærileg og almennt séð óhemju langt seilst í leit að einhverjum neikvæðum hliðum á orkusölu til stóriðju. Samorka vonar að betur verði vandað til verka við endanlegan frágang skýrslunnar." Sjá nánar á vef Samorku, m.a. fylgiskjöl frá Melland Partners unnið fyrir Landsvirkjun, og fylgiskjöl frá Orkuveitu Reykjavíkur og HS Orku: http://www.samorka.is/Apps/WebObjects/Samorka.woa/1/wa/dp?detail=1000417&id=1000001&wosid=qtuWY84S8cK0bTAplaX24g
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira