Raunlækkun íbúðaverðs á landinu öllu er 23% á einu ári 25. júní 2009 11:12
Undanfarna 12 mánuði hafa íbúðir á landinu öllu lækkað um 10,4% að nafnvirði og um 23% að raunvirði. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að íbúðaverð á landinu öllu hefur nú lækkað um tæplega 14% að raunverði það sem af er þessu ári samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands sem birt var í gær. Að nafnverði nemur lækkun húsnæðisverðs á landinu öllu 8,3% á sama tímabili. Mælingar Fasteignaskrár Íslands á þróun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýna sömu þróun en samkvæmt þeim mælingum hafa íbúðir á höfuðborgarsvæðinu verið að lækka um 10,5% að nafnvirði undanfarna 12 mánuði. Tíðni makaskiptasamninga í fasteignaviðskiptum hefur aukist mikið undanfarna mánuði og er nú svo komið að makaskiptasamningar eru um helmingur allra fasteignaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu og í kringum 15% allra fasteignaviðskipta á landsbyggðinni. Fasteignaskrá undanskilur makaskiptasamninga við útreikning á vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæði, og endurspeglar vísitalan því verð í beinum viðskiptum þar sem greiðsla kemur fyrir fasteign. Hagstofan tekur hinsvegar mið af makaskiptasamningum í sínum útreikningum en ef hluti verðs er greiddur með öðru en peningum er sá hluti núvirtur með ákveðinni ávöxtunarkröfu sem er endurskoðuð mánaðarlega. Búast má við að íbúðaverð haldi áfram að lækka á næstu misserum enda eru allar aðstæður á íbúðamarkaði nú afar mótdrægar. Þannig hefur eftirspurn dregist saman í kjölfar minnkandi ráðstöfunartekna, þrengri lánamöguleika og óvissu á vinnumarkaði. Samhliða minnkandi eftirspurn eykur svo mikið framboð á nýju íbúðarhúsnæði sem safnast hefur upp í góðæri undanfarinna ára þrýsting á verðlækkanir íbúða.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira