Skuldatryggingaálag á ríkissjóð lækkar hratt 21. júlí 2009 12:38
Kostnaður við að tryggja skuldabréf ríkissjóðs í evrum til 5 ára hefur lækkað um nærri 0,8 prósentur frá lokun markaða á miðvikudag. Er álagið nú komið nokkuð undir 600 punkta. Minnkandi áhættufælni á mörkuðum á þar væntanlega nokkurn hluta að máli, en þó virðast fréttir af ESB-umsókn Íslands og nú síðast af væntu eignarhaldi bankanna einnig leika þar hlutverk. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þegar þetta er ritað stendur 5 ára skuldatryggingaálag á ríkissjóð í 583 punktum, sem samsvarar því að reiða þurfi fram rétt rúm 5,8% af nafnverði skuldabréfs til að tryggja eiganda þess gegn greiðslufalli næstu 5 árin. Álagið var hins vegar 660 punktar síðastliðinn miðvikudag. Lækkun skuldatryggingaálags á ríkisjóðs er raunar langt í frá einsdæmi, enda hefur áhættufælni farið minnkandi á mörkuðum undanfarna daga. ITRAXX Europe-vísitalan, sem vegur saman skuldatryggingaálag margra helstu fyrirtækja í Evrópu, hefur þannig lækkað um 8 punkta frá miðvikudegi síðustu viku, og ITRAXX Crossover-vísitalan, þar sem álag á áhættusamari fyrirtæki er vegið saman, hefur lækkað um 36 punkta á sama tímabili. Hlutfallslega er lækkun íslenska álagsins þó talsvert meiri en fyrrnefndra vísitalna. Erlendir fjölmiðlar hafa að jafnaði tekið tíðindum undanfarinna daga af Íslandi með jákvæðum hætti, sér í lagi þó fréttum af endurskipulagningu bankanna. Enn er skuldatryggingaálag á ríkissjóð Íslands þó það hæsta meðal þróaðra ríkja í Evrópu, en Írland kemur þar næst á eftir með 171 punkts álag. Af nýmarkaðsríkjum í Evrópu er Úkraína með langhæsta álagið, 1.582 punkta, og þar á eftir kemur Lettland með 690 punkta álag. Litháen og Kazakstan sigla svo í kjölfar Íslands með 450 punkta álag.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira