Viðskipti innlent

Launavísitala hefur hækkað um 2,6% undanfarið ár

Gunnar Örn Jónsson skrifar
Launavísitala í júlí 2009 er 358 stig og hækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 2,6%. Hagstofan greinir frá þessu í dag.

Vísitala kaupmáttar launa í júlí 2009 er 106,4 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 7,8%.

Samkvæmt samkomulagi um breytingar á kjarasamningum milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem undirritað var þann 25. júní síðastliðinn komu launabreytingar sem samkvæmt fyrri samningum áttu að taka gildi 1. mars 2009 til framkvæmda að hluta þann 1. júlí síðastliðinn.

Samkvæmt samkomulaginu hækkuðu almennir launataxtar um 6.750-8.750 krónur þann 1. júlí en síðari hluti hækkunarinnar kemur til framkvæmda 1. nóvember 2009.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×