Lánadrottnar Kaupþings í Lúx samþykkja endurskipulagningu 5. júní 2009 11:45 Kaupþing í Lúx.
Helstu lánadrottnar Kaupthing bank í Lúxemborg samþykktu í dag nýja áætlun um endurskipulagningu bankans sem unnin var í samráði við Blackfish Capital Management Limited sem er fjármálafyrirtæki í eigu Rowland fjölskyldunnar í Bretlandi. Samþykktu lánardrottnar sem eiga 98% af útistandandi kröfum samkomulagið og hins vegar 23 af þeim 25 bönkum um ræðir. Í báðum tilvikum þurfti samþykki meirihluta til að samkomulagið öðlaðist gildi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Þá segir að Rowland fjölskyldan hafi verið viðloðandi fjárfestingar og fjármálaumsýslu frá því um 1960 og reki skrifstofur í London og á Guernsey. Tilgangur fjölskyldunnar með yfirtöku á bankanum sé að bjóða hefðbundna bankastarfsemi á sviði eignastýringar og einkabanka-þjónustu meðal annars til íslenskra viðskiptavina. „Með ofangreindu samþykki er ljóst að allir viðskiptavinir Kaupthing Bank Luxembourg í Belgíu, Sviss, Lúxemborg, um 23 þúsund viðskiptavinir fá innstæður sínar að fullu greiddar. Íslenska ríkið tekur ekki á sig neinar skuldbindingar né leggur til neina fjármuni vegna endurskipulagningar bankans. Eins og áður hefur verið greint frá þá er tryggt við endurskipulagningu bankans að aðgangur íslenskra stjórnvalda að upplýsingum er varðar einstaka viðskiptavini, verði hinn sami og áður. Eins og kunnugt er þá óskaði Kaupthing Bank Luxembourg S.A. eftir greiðslustöðvun þann 9. október sl. en síðan þá hafa yfirvöld í Lúxemborg, þarlendir umsjónarmenn greiðslustöðvunarinnar ásamt framkvæmdastjórn bankans og skilanefnd Kaupþings hf. unnið að endurskipulagningu bankans til að tryggja eignir viðskiptavina. Þessu markmiði hefur nú verið náð með samþykki kröfuhafanna sem nú liggur fyrir. Nýjir eigendur stefna að því að opna bankann undir nýju nafni í byrjun júlí en tíminn þangað til verður nýttur til að undirbúa formlega opnun hins nýja banka."
Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Fleiri fréttir Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Sjá meira