Munur á gengi krónunnar innan- og utanlands hefur minnkað 21. maí 2009 10:57
Munurinn á gengi íslensku krónunnar á innlendum gjaldeyrismarkaði og aflandsmarkaði hefur minnkað aftur eftir að hafa aukist fyrstu mánuði ársins og voru viðskipti með krónuna á genginu 200-201 gagnvart evru á aflandsmarkaðinum, eða á u.þ.b. 23% lægra gengi en á innlendum gjaldeyrismarkaði. Þetta kemur fram í fundargerð peningastefnunefndar frá síðasta stýrivaxtafundi hennar þann 7. maí s.l. Þar segir einnig að gengi íslensku krónunnar hefur verið tiltölulega stöðugt frá fundi peningastefnunefndarinnar í apríl. Gengisvísitala miðað við víða vöruviðskiptavog var 0,6% hærra 5. maí en það var þegar tilkynnt var um síðustu stýrivaxtaákvörðun 8. apríl. Þar segir ennfremur að skuldatryggingarálag á ríkissjóð Íslands hafði lækkað nokkuð. Það var áfram hátt, tæplega 8%. Hinsvegar lágu lítil viðskipti þar að baki og líklegast er að ekki einungis landaáhætta heldur einnig einkenni skuldatryggingarmarkaðarins hafi áhrif á álagið. Skammtímavextir í helstu viðskiptalöndum Íslands höfðu lækkað um 1,0 prósentu frá stýrivaxtaákvörðuninni í apríl. Munurinn á innlendum stýrivöxtum og stýrivöxtum Evrópska seðlabankans hafði minnkað um 2,50 prósentur í 11,7 prósentur. Fyrstu vikuna í maí var munur þriggja mánaða millibankavaxta gagnvart evru að meðaltali um það bil 2 prósentum minni en fyrstu vikuna í apríl en var þó enn 11,5 prósentur. Viðskipti á gjaldeyrismarkaðinum námu alls 1,2 milljarði kr. fyrstu vikuna í maí, samanborið við 1 milljarð kr. fyrstu vikuna í apríl. Þessar tölur sýna þó aðeins að þorri gjaldeyrisviðskipta viðskiptabankanna síðan millibankamarkaðurinn með gjaldeyri tók aftur til starfa í desember hafa farið fram innan hvers banka.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira