Lán frá Noregi háð samþykki AGS á efnahagsáætlun Sigríður Mogensen skrifar 29. júlí 2009 12:06 Fastafulltrúi og sendifulltrúi AGS gagnvart Íslandi. Mynd/ Anton Brink.
Noregur mun ekki lána Íslandi nema samþykki stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á endurskoðaðri efnahagsáætlun Íslands liggi fyrir. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn fréttastofu. Það ræðst í dag hvort Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn frestar enn fyrirtöku á málefnum Íslands. Fréttastofa sendi fyrirspurn um þetta til Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur og Finnlands. Svar Noregs er áþekkt svarinu frá fjármálaráðuneyti Svíþjóðar sem fréttastofa greindi frá í kvöldfréttum í gær. Í svarinu segir að Noregur sé tilbúið að aðstoða Ísland í erfiðum aðstæðum, með því að veita landinu lánafyrirgreiðslu í samstarfi við Danmörk, Finnland og Svíþjóð. Þá segir að ákvörðun norsku ríkisstjórnarinnar, þingsins og Seðlabanka Noregs um að lána Íslandi sé byggð á skuldbindingu Íslands um að standa undir erlendum skuldbindingum sínum. Meðal annars skuldbindingum vegna Icesave. Þá sé samstarfsáætlun Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins einnig skilyrði fyrir láninu frá Noregi. Lánið verði veitt í tengslum við samþykki stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á endurskoðaðri efnahagsáætlun Íslands. Í svari Noregs við fyrirspurn fréttastofu segir ennfremur að mikilvægt sé að Ísland uppfylli þau skilyrði sem hér hafa verið upptalin til að landið geti hafið að draga á lánalínur Norðurlandanna. Ef skilyrðin verði ekki uppfyllt muni lánafyrirgreiðslan frá Noregi frestast og ef þurfi að gera breytingar á lánaskilmálum sem krefjast samþykki norska þingsins verði ekki hægt að taka þær fyrir fyrr en seint í haust. Af svörum Noregs og Svíþjóðar má dæma að lán Norðurlandanna til Íslands berist ekki fyrr en stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur lagt blessun sína yfir endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. Þetta gengur þvert á orð Franeks Rozwadowski, sendifulltrúa sjóðsins á Íslandi. Hann hefur látið hafa eftir sér að fyrirtaka sjóðsins á málum Íslands muni ekki eiga sér stað fyrr en gengið hefur verið frá láni Norðurlandanna. Undirritun lánsloforðs dugi ekki til. Það ræðst líklega í dag hvort Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn frestar enn endurskoðuninni, sem er formlega á dagskrá sjóðsins næstkomandi mánudag.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira