Verður stjórnarformaður bandarisks lyfjafyrirtækis Gunnar Örn Jónsson skrifar 29. júlí 2009 10:41 Róbert Wessman.
Róbert Wessman verður starfandi stjórnarformaður bandaríska lyfjafyrirtækisins Alvogen Group. Hann tekur við starfinu á næstu dögum. Gengið var frá samningum um helgina. Í samstarfi við fyrrverandi stjórnarformann félagsins og bandaríska fjárfestingafélagið AFI Partners verður unnið að frekari uppbyggingu Alvogen á alþjóðlegum lyfjamarkaði undir forystu Róberts. Á undarförnum misserum hefur Róbert unnið að því að setja á laggirnar alþjóðlegan fjárfestingasjóð, sem mun sérhæfa sig í fjárfestingum í samheitalyfjafyrirtækjum. Uppbygging leiðandi alþjóðlegs samheitalyfjafyrirtækis er þannig í undirbúningi. Uppbygging sjóðsins hefur verið unnin í samstarfi við Kalan Capital LLP og svissneska bankann Credit Suisse. Fjárfesting í Alvogen er fyrsta skrefið í stofnun sjóðsins. Róbert var forstjóri Actavis um níu ára skeið og lét af störfum um mitt ár 2008. Undir hans stjórn tók félagið miklum stakkaskiptum og komst meðal annars í hóp stærstu fyrirtækja heims á sínu sviði. Þá var Actavis um árabil skráð í Kauphöll Íslands og skilaði að jafnaði hæstu ávöxtun skráðra hlutabréfa á þeim tíma sem Róbert stýrði félaginu. Alvogen með yfir hundrað ára sögu Alvogen er bandarískt samheitalyfjafyrirtæki með yfir 100 ára rekstrarsögu. Félagið sérhæfir sig í þróun og framleiðslu samheitalyfja, sem eru flókin í þróun og framleiðslu. Alvogen hefur fjölda samheitalyfja í þróun og árlegt söluverðmæti þeirra frumlyfja á markaði í dag er um 17 milljarðar bandaríkjadala, sem endurspeglar vaxtamöguleika og styrk þróunarstarfs félagsins. Í dag starfa um 400 starfsmenn hjá Alvogen í Bandaríkjunum og væntanlegar tekjur félagsins á árinu 2009 eru um fimm milljarðar króna. Alvogen starfrækir fullkomna lyfjaverksmiðju í New York fylki, sem getur framleitt um átta milljarða taflna á ári og hefur verksmiðjan getið af sér gott orð fyrir hágæða framleiðslu. Verksmiðja Alvogen var áður í eigu lyfjafyrirtækisins Procter og Gamble. Alvogen hefur um níu milljarða króna til ráðstöfunar til að styðja við fyrirhugaðan vöxt félagsins í Bandaríkjunum. Framtíðarsýn Alvogen miðar að því að byggja upp öflugt alþjóðlegt lyfjafyrirtæki sem verði leiðandi á sínu sviði innan fárra ára. Doug Drysdale verður áfram forstjóri Alvogen en hann hefur yfir 20 ára reynslu úr lyfjaiðnaði og var um árabil yfirmaður fyrirtækjakaupa hjá Actavis. Svafa Grönfeldt, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Actavis, mun ásamt Árna Harðarsyni fyrrverandi lögfræðingi Actavis, setjast í stjórn Alvogen. Róbert Wessman er ánægður með samstarfið við Alvogen og segir ýmis tækifæri felast í því. „Alþjóðlegt umhverfi samheitalyfjafyrirtækja hefur á undanförnum árum tekið miklum breytingum. Samkeppni verður sífellt harðari og uppbygging slíkra fyrirtækja í dag kallar á nýjar áherslur. Öflugt þróunar- og markaðsstarf, hágæða verksmiðjur, straumlínulagað stjórnskipulag og lágur rekstrarkostnaður eru meðal þess sem mun einkenna stefnu okkar. Aðkoma mín að Alvogen nú er aðeins fyrsta skrefið í spennandi og krefjandi verkefni og það er mjög ánægjulegt að nú sé búið að ganga frá fyrsta samningnum," segir Róbert.
Mest lesið „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira