Óverðtryggðir langtímavextir ekki lægri síðan 2004 13. maí 2009 11:59
Ef frá er talinn fyrri hluti októbermánaðar síðastliðins, þegar flótti í öryggi réði lögum og lofum á skuldabréfamarkaði, hafa óverðtryggðir langtímavextir aðeins einu sinni verið eins lágir og nú frá tilkomu RIKB13 á vordögum 2002. Var það vorið 2004, rétt áður en Seðlabankinn hóf vaxtahækkunarferli sitt sem stóð allt fram á lokafjórðung síðasta árs. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka í dag í umfjöllun greiningarinnar um skuldabréfamarkaðinn. Og þar segir að öfugt við það sem þá var er hins vegar útlit fyrir að skammtímavextir muni lækka töluvert á næstu misserum og því töluverðar líkur á að langtímavextir gætu lækkað frekar. . Óverðtryggðir langtímavextir á skuldabréfamarkaði eru nú á bilinu 7,1 - 7,2%. Viðskipti á skuldabréfamarkaði voru með líflegra móti í gær og nam velta með markflokka tæplega 10 milljörðum kr. Nærri helmingur þessarar veltu var vegna viðskipta með lengsta ríkisbréfaflokkinn, RIKB19, og lækkaði krafa hans um 14 punkta í gær. Raunar lækkaði ávöxtunarkrafa allra markflokka, verðtryggðra sem óverðtryggðra og var kröfulækkunin á bilinu 8 - 63 punktar Væntingar skuldabréfafjárfesta virðast raunar hafa færst í átt til lægri vaxta næsta kastið í kjölfar birtingar fjármálaráðuneytisins á þjóðhagsspá sinni í gærmorgun. Þar er því spáð að stýrivextir muni að meðaltali verða 4,3% á næsta ári og 4,8% árið 2011. Ef spáin gengur eftir verða stýrivextir lægri á næstu misserum en þeir hafa nokkru sinni verið frá tilkomu þeirra árið 1994. Spá ráðuneytisins gerir einnig ráð fyrir verðbólgu undir 2,5% markmiði Seðlabanka þessi ár, en þrátt fyrir það virðist kaupáhugi á íbúðabréfum hafa verið talsverður í gær. Það má setja í samhengi við eftirspurn í útboði Íbúðalánasjóðs á mánudag, en tilboð námu 12 milljörðum kr., fjórfaldri þeirri upphæð sem sjóðurinn tók tilboðum fyrir. Þeir sem þar gengu bónleiðir til búðar hafa því væntanlega leitað á eftirmarkað í staðinn til kaupa á íbúðabréfum.
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira