Skráð atvinnuleysi var 9,1% í apríl 13. maí 2009 12:23
Skráð atvinnuleysi í apríl 2009 var 9,1% og jókst úr 8,9% í mars, eða um 1,8%. Að meðaltali voru 14.814 manns atvinnulausir í apríl eða 268 fleiri að jafnaði en í mars. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1%, eða 1.717 manns að jafnaði. Þetta kemur fram á vefsíðu Vinnumálastofnunnar. Þar segir að atvinnuleysi jókst um tæp 4% á höfuðborgarsvæðinu frá marsmánuði, en hefur dregist saman um rúm 2% á landsbyggðinni. Mest hefur dregið úr atvinnuleysi á Norðurlandi eystra þar sem atvinnuleysið minnkaði úr 8,8% í mars í 8,3% í apríl. Einnig hefur dregið úr atvinnuleysi á Austurlandi (úr 5,5% í 5,2%) og á Suðurlandi (úr 7,4% í 7,2%). Annars staðar hefur atvinnuleysið staðið í stað eða aukist lítið eitt. Þrátt fyrir að atvinnuleysi hafi aukist að meðaltali milli mars og apríl hefur atvinnulausum á skrá fækkað um 72 frá í lokum mars til loka apríl. Fækkunin kemur fram á landsbyggðinni þar sem fækkað hefur um 278 manns, en á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað um 206 manns frá lokum mars til loka apríl. Yfirleitt batnar atvinnuástandið frá apríl til maí, m.a. vegna upphafs árstíðasveiflu. Í fyrra var atvinnuleysið svipað í báðum mánuðum og mældist 1%. Nú er hins vegar mun meiri samdráttur í hagkerfinu. Gera má ráð fyrir talsverður fjölda skólanema á atvinnuleysisskrá, en minna er um ráðningar vegna atvinnuástandsins nú en undanfarin ár. Á móti kemur að meira er um að boðið sé upp á sumarnám í ýmsum háskóladeildum. Þá koma nemendur inn á atvinnuleysisskrá seint í mánuðinum og vega þar af leiðandi lítið í skráðu atvinnuleysi maímánaðar. Erfitt er að áætla atvinnuleysi um þessar mundir vegna mikillar óvissu í efnahagslífinu, en líklegt er að atvinnuleysið í maí 2009 muni lítið breytast og verða á bilinu 8,8%-9,3%.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira