Samkeppniseftirlitið bannar tilboð Símans 2. júlí 2009 12:27
Samkeppniseftirlitið hefur í dag lagt bann til bráðabirgða við tilboði Símans sem kallast „3G netlykill og áskrift fyrir 0 kr. í allt sumar" á meðan rannsókn eftirlitsins á kæru Nova vegna tilboðsins stendur yfir. Í frétt um málið á vefsíðu eftirlitsins segir að sennilegt sé að tilboðið brjóti í bága við bann samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Það er til þess fallið að skaða samkeppni á viðkvæmum, nýlegum markaði þar sem Nova, yngsti keppinauturinn á fjarskiptamarkaði, hefur verið að ná nokkurri fótfestu. Þykir Samkeppniseftirlitinu nauðsynlegt að banna tilboð Símans að svo stöddu vegna þess að sumarið er sá árstími þegar helst er að vænta mikils vaxtar á umræddum markaði. Bið með ákvörðun þangað til endanleg niðurstaða af rannsókn eftirlitsins á kæru Nova liggur fyrir kann því að valda samkeppnislegum skaða á markaðnum sem ekki væri afturkræfur. Kynni keppinautur að hrökklast út af markaðnum við svo búið. Í framangreindu tilboði Símans felst þjónusta sem varðar mögulega tengingu á tölvum við Internetið með notkun 3G (þriðju kynslóðar) netlykils. Þeir sem gerast áskrifendur að 3G gagnaflutningsþjónustu hjá Símanum fá netlykil (stundum nefndur pungur) og áskrift í þrjá mánuði ókeypis en binda sig í viðskipti við fyrirtækið í sex mánuði. Þessi þjónusta getur m.a. nýst notendum, ekki síst ferðamönnum í sumarbústöðum, tjaldsvæðum og víðar, á svæðum sem ADSL þjónustu nýtur ekki en þar sem 3G þjónusta býðst.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira