Laxeldi Silfurstjörnunnar skilar 380 milljónum í ár 15. apríl 2009 14:48
Laxeldi Silfurstjörnunnar mun skila um 380 milljónum kr. í útflutningsverðmæti í ár miðað við það verð sem fæst fyrir laxinn á Evrópumarkaðinum í dag. Benedikt Kristjánsson framkvæmdastjóri Silfurstjörnunnar segir að á næsta ári muni þeir síðan auka framleiðsluna. Í frétt á vefsíðunni e24.no segir að mjög gott verð fáist nú fyrir norskan eldislax eða tæplega 34 norskar kr. á kílóið eða hátt í 700 kr. Hefur verðið hækkað um rúm 12% frá því í síðustu viku. Í fréttinni er þetta orðað sem svo að norska laxeldið sé að upplifa gullöld mitt í fjármálakreppunni. Benedikt segir að þeir reikni með að í ár muni þeir framleiða um 550 tonn af flökuðum laxi og miðað við fyrrgreint verð geri það um 380 milljónir kr. í verðmæti. Á næsta ári er síðan reiknað með að framleiðslan fari í 700-750 tonn í strandeldisstöð fyrirtækisins í Öxarfirði. „Það er óhætt að segja að útlitið sé gott hvað varðar nánustu framtíð í laxeldinu," segir Benedikt sem líst mjög vel á það verð sem er í boði fyrir laxinn þessa dagana. Það sem einkum veldur hækkandi verði á eldislaxi eru vandamál Chile-manna í sínu eldi vegna sjúkdóma. Chile hafði, þegar best lét, framleitt um 500.000 tonn af eldislaxi árlega en sú framleiðsla er mikið til í molum vegna vandmála tengdum sjúkdómum. Talið er að Chile muni ekki ná tökum á vandamálum sínum fyrr en eftir 4-5 ár. Á meðan er lag fyrir aðra að koma sér inn á markaðinn.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira