Gjaldeyrisveltan eykst töluvert á millibankamarkaði 5. október 2009 11:00
Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri var 380 milljónir króna að jafnaði á dag í september eða 2,1 milljón evra. Er það mesta dagsvelta sem verið hefur á þessum markaði frá því að hann var myndaður á ný eftir hrun banka. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að hlutdeild Seðlabankans í veltunni hafi einnig verið að minnka, en í september greip bankinn einungis tvisvar sinnum inn í markaðinn og keypti krónur fyrir 3 milljónir evra. Í ágúst greip bankinn hins vegar 6 sinnum inn í markaðinn með samtals kaupum á krónum fyrir 6,75 m. evra. Í ágúst stækkaði Seðlabankinn hvert inngrip um helming og fór með það úr 250 þús. evrum á hvern aðila millibankamarkaðar í 500 þús. evrur. Jók það áhrifamátt hvers inngrips. Á sama tíma voru stækkuð hver viðskipti sem aðilar að millibankamarkaðinum áttu en aðilar þessir eru viðskiptabankarnir þrír, Íslandsbanki, Landsbanki og Kaupþing. Er þetta ein ástæða þess af hverju veltan á markaðinum hefur aukist en fjöldi viðskipta hefur lítið breyst frá fyrri mánuðum. Þó svo að umtalsvert hafi dregið úr inngripum Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði undanfarið hefur gengi krónunnar haldist nokkuð stöðugt. Afgangurinn á vöruskiptajöfnuði í september var nokkuð minni en síðustu mánuði og á sama tíma hefur líklegast einnig dregið úr afganginum á þjónustujöfnuði vegna minni tekna af erlendum ferðamönnum. „Það er því styrkleikamerki að þrátt fyrir þetta hafi krónan ekki lækkað um meiri en ríflega eitt prósent yfir mánuðinn. Í lok september var miðgildi evrunnar 181,6 krónur en í lok ágúst var það 179,4 krónur," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira