Staða gjaldeyrismiðlunar 27. maí 2009 04:15
Við hrun bankakerfisins í október síðastliðnum lokaðist á öll viðskiptatengsl við erlenda banka sem búið var að byggja upp með góðum árangri á löngum tíma. Allt bankakerfið á Íslandi varð rúið trausti og erlend greiðslumiðlun lenti í uppnámi. Þá kom berlega í ljós hversu háðir við Íslendingar erum greiðslumiðlun við útlönd. Þetta ferli sem fáir leiða hugann að meðan allt leikur í lyndi varð skyndilega á allra vörum. Við slíkar aðstæður er ekki óeðlilegt að skapist misskilningur og reyndar fór svo að alls kyns rangfærslur fengu hljómgrunn í fjölmiðlum og víðar. Jafnvel eftir að greiðslur fóru að ganga eðlilega hefur ýmsu verið haldið fram sem ekki á sér stoð í raunveruleikanum. Til dæmis hefur verið sagt að eina gáttin fyrir greiðslur til útlanda sé í gegnum JP Morgan-bankann. Jafnframt að þær greiðslur sem fari í gegnum ríkisbankana séu tryggðar af íslenska ríkinu. Báðar staðhæfingarnar eru alrangar. JP Morgan á undan öðrum bönkumSigríður María Torfadóttir viðskiptastjóri hjá Fjárstýringu Íslandsbanka.Með útsjónarsemi og fyrirhyggju tókst starfsmönnum Seðlabanka Íslands og viðskiptabankanna þriggja að tryggja flæði erlendra greiðslna til og frá landinu. Í raun má segja að Seðlabankinn hafi annast alla erlenda greiðslumiðlun á Íslandi síðustu þrjá mánuði liðins árs. Það gefur augaleið að svona grundvallarbreytingum á jafn viðkvæmum viðskiptum fylgdu aukaverkanir. Afgreiðslutími erlendra greiðslna lengdist og að auki urðu alls kyns hnökrar á leiðinni sem oftast byggðust á misskilningi og tók á stundum langan tíma að vinna úr. Í greiðslumiðlun sinni notast Seðlabankinn við ýmsa erlenda banka víða um heim en JP Morgan-bankinn er ekki einn þeirra. Hins vegar var JP Morgan langt á undan öðrum erlendum bönkum til að bjóða nýju bönkunum þjónustu sína, sem skýrir hvers vegna nýju bankarnir stofnuðu sína fyrstu reikninga hjá þeim. Fleiri gjaldeyris-reikningar í fleiri löndumSeðlabanki Íslands Síðustu þrjá mánuði síðasta árs annaðist Seðlabanki Íslands alla erlenda greiðslumiðlun hér á landi, eftir fall stóru bankanna þriggja í októberbyrjun. Markaðurinn/PjeturFrá áramótum hafa bæði Íslandsbanki og Kaupþing sinnt eigin greiðslumiðlun. Hún fer fram að hluta gegnum reikninga hjá JP Morgan Chase-bankanum en að auki hafa verið opnaðir reikningar hjá öðrum bönkum sem íslenskir bankar hafa átt gott samstarf við í áratugi. Sem dæmi má nefna að Íslandsbanki er nú með reikninga hjá Danske Bank í Danmörku, SEB í Noregi, Svenska Handelsbanken í Svíþjóð, Royal Bank of Canada í Kanada og Commercial Bank of Australia í Ástralíu. Þá er í gangi vinna við að opna reikninga hjá fleiri bönkum. Allir þessir reikningar voru opnaðir án þess að nokkrar ábyrgðir eða tryggingar væru lagðar fram og kostnaður bankanna við reikningana og greiðslur gegnum þá er sambærilegur við það sem gengur og gerist á markaðnum miðað við magn viðskipta. Miðlun greiðslna gegnum þessa reikninga hefur gengið vel og örugglega. Dæmi um að greiðslur sem fara þessa leið skili sér ekki á réttum tíma eru hlutfallslega álíka mörg og þau voru fyrir hrun, en þess ber að geta að íslenskir bankar hafa ætíð staðið framarlega að þessu leyti. Um miðjan janúar síðastliðinn opnaði Íslandsbanki aftur möguleikann fyrir fyrirtæki í viðskiptum, að senda erlendar greiðslur í gegnum netbankann. Næstu skrefFram undan er mikið starf við að byggja upp íslenskt bankakerfi. Hluti þess starfs mun felast í því að koma í veg fyrir að aðstæður eins og sköpuðust í greiðslumiðlun í október komi upp aftur. Það starf verður unnið í góðri samvinnu Seðlabankans, viðskiptabankanna og sparisjóðanna, vonandi í friði fyrir röngum fullyrðingum á borð við þær sem nefndar voru og eru engum til hagsbóta.
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira