Nýrrar sýnar er þörf 27. maí 2009 04:15 Ný framtíðarsýn er rit um stjórnun fyrirtækja og leiðir sem kunna að vera færar út úr efnahagskreppunni. „
Gífurlega mikilvægt er að vinna rétt úr þeirri stöðu sem við erum í. Verði ekki bættir stjórnarhættir fyrirtækja og farið í að nálgast betur Evrópusambandið og opna þjóðfélagið þá eru horfur fram undan mjög slæmar,“ segir Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri fjármála- og þróunarsviðs Háskólans í Reykjavík. „Ef hins vegar rétt er á haldið þá eigum við mjög góða framtíð fyrir okkur,“ bætir hann við. Út er komin eftir Þorkel bókin „Ný framtíðarsýn“ þar sem meðal annars er fjallað um stjórnun fyrirtækja og hlutverk stjórna og stjórnenda. „Þetta lagði ég upp með, en þegar efnahagshrunið varð tengdi ég það dálítið við efnið og bendi á að ein af ástæðum þess hvernig fór er vanræksla stjórna og stjórnarmanna í fyrirtækjum. Síðan reyni ég að benda á þessa nýju framtíðarsýn um hvernig við ætlum að komast út úr þessu ástandi.“ Meðal spurninga sem Þorkell veltir upp er hvort fall bankakerfisins kunni að skrifast á veika stjórnmálaforystu. „Getur verið að vinskapur og það að vera í réttu viðskiptablokkinni hafi ráðið meiru um ráðningu forstjóra og fjármögnun fyrirtækis en hæfileikar og hlutlaust mat á rekstrinum og viðkomandi einstaklingi? Þetta kemur stundum upp í hugann þegar litið er til þess hverjum var falin sú ábyrgð að eiga og reka íslensku bankana og lykilfyrirtæki landsmanna við einkavæðingu þeirra,“ segir í bókinni. Einkavæddir bankar hai orðið afl sem braut upp áratugagamlar valdablokkir. „Þess í stað komu nýjar og yfirleitt skuldsettar og illa reknar blokkir sem lifðu aðeins í stuttan tíma, eða frá árinu 2003 fram til október 2008 þegar bankarnir hrundu.“ - óká
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira