Icelandair flytur starfsemi til Boston og Íslands 19. júní 2009 11:50
Icelandair hefur ákveðið að flytja svæðisskrifstofu félagsins í Bandaríkjunum frá Columbia í Maryland til Boston. Jafnframt verða gerðar umtalsverðar breytingar á starfseminni ytra, sem m.a. felur í sér að hluti verkefna hennar, og störf, flytjast til Íslands. Í tilkynningu segir að eftir breytinguna og flutninginn til Boston verður lögð höfuðáhersla á markaðs- og sölustarf á skrifstofu félagsins í Bandaríkjunum. Annað, eins og farmiðaútgáfa, verðlagning, bókhald og ákveðin starfsemi Icelandair Holidays verður að stórum hluta flutt yfir á aðalskrifstofur Icelandair hér á Íslandi. Gert er ráð fyrir að flutningum verði lokið um 15. ágúst. "Við höfum verið að gera mjög miklar breytingar á starfsemi Icelandair erlendis í hagræðingarskyni.síðastliðið ár. Við erum að verja störf hér á Íslandi með því að nýta okkur stærðarhagkvæmni og tækninýjungar. Fyrir ári síðan störfuðu hátt í 70 manns hjá okkur á svæðisskrifstofunni í Maryland, en við gerum ráð fyrir að innan við 30 muni verða starfandi í Boston, eða um 40 færri", segir Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair. "Við höfum flutt starfsemi þjónustuvera okkar erlendis hingað heim að undanförnu, og þannig eflt starfsemina hér og aukið við þjónustuna. Opnunartími hefur verið lengdur og símtölum viðskiptavina bæði austan hafs og vestan er nú svarað hér heima. Í þjónustuverinu er öflugur hópur starfsmanna sem talar fjölmörg tungumál og er símtölum sjálfkrafa vísað á starfsmenn eftir því frá hvaða löndum þau berast. Þannig hefur tekist að verja störf hér á Íslandi, þrátt fyrir samdrátt í utanferðum Íslendinga", segir Helgi Már. Svæðisskrifstofa Icelandair hefur verið staðsett í Cloumbia í Marylandfylki í um tvo áratugi en var lengst af í New York. Svæðisstjóri Icelandair fyrir Bandaríkin og Kanada er Þorsteinn Egilsson.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira