Engin vaxtalækkun það sem eftir lifir árs Gunnar Örn Jónsson skrifar 12. ágúst 2009 14:27
Greiningardeild Kaupþings telur að stýrivextir haldist óbreyttir og engin vaxtalækkun muni eiga sér stað það sem eftir lifir árs. Líklegt er að vextir hækki með afnámi gjaldeyrishafta. Greiningardeild Kaupþings gerir ráð fyrir óbreyttum vöxtum Seðlabankans á vaxtaákvörðunarfundi bankans á morgun. Telur Greiningardeildin að innlánsvöxtum Seðlabankans verði haldið óbreyttum í 9,5% og að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum í 12% Stýrivaxtaspáin er nákvæmlega sama niðurstaða og Greiningardeid Íslandsbanka og Hagfræðideild Landsbankans hafa komist að. Engin vaxtalækkun það sem eftir lifir árs Kaupþingsmenn telja enga vaxtalækkun vera í spilunum það sem eftir lifir árs, enda hafa orðið sinnaskipti í Seðlabankanum frá því gengi krónunnar veiktist á ný í mars og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn kom þeirri skoðun sinni á framfæri að farið væri of geyst í vaxtalækkunum. Fræðilega séð gæti þó krónan styrkst á ný og breytt hugsunarhætti Seðlabankans. Bendir Greiningardeildin á eftirfarandi ummæli sem komu fram í síðustu fundargerð Peningastefnunefndar og eru meðal annars ástæðan fyrir spá Greiningardeildarinnar: „…álitu nefndarmenn að ekki væri ráðlegt að slaka frekar á aðhaldi í peningamálum að svo stöddu, eða þar til krónan hefði styrkst verulega að nýju miðað við núverandi stöðu hennar. Jafnvel væri nauðsynlegt að hækka stýrivexti ef krónan styrktist ekki á næstunni." Rökstuðningur Peningastefnunefndar fyrir að halda vöxtum óbreyttum á síðasta vaxtaákvörðunarfundi var umtalsvert lægra gengi krónu en peningastefnunefnd taldi viðunandi í fundargerð sinni í mars og aukning í verðbólgu og verðbólguvæntingum. „Þótt langtímaáætlun í ríkisfjármálum og endurskoðun kjarasamninga séu jákvæð skref er það skoðun peningastefnunefndarinnar að veik staða krónunnar komi í veg fyrir frekari vaxtalækkun. Fyrrnefndir þættir ættu þó að auka tiltrú á krónuna næstu misserin og þar með stuðla að gengishækkun hennar. Nefndarmenn telja jafnframt að styrkist krónan ekki, gæti reynst nauðsynlegt að hækka vexti." Líklegt að vextir hækki með afnámi gjaldeyrishafta Krónan hefur ekki styrkst frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi og telur Greiningardeildin að Peningastefnunefndin muni sýna talsverða biðlund áður hún bregst við með hækkun vaxta. Greiningardeildin telur að bankinn muni jafnvel hækka stýrivexti sína þegar afléttingu gjaldeyrishafta verður orðið vel ágengt. Þau skref sem tekin verða á allra næstu mánuðum eru hinsvegar tiltölulega áhættulítil út af fyrir sig fyrir stöðugleika krónunnar, en þar er einkum um að ræða niðurfellingu hafta á erlenda fjárfestingu. Óhætt er að taka undir þau sjónarmið Greiningardeildarinnar að vextir hækki með afléttingu gjaldeyrishafta þar sem háir vextir eru liklegir til að laða að erlenda fjárfesta og styrkja í leiðinni gengi íslensku krónunnar. Það mun þó alfarið velta á áhættusækni fjárfesta, hvort þeir yfir höfuð treysti sér til þess að fjárfesta í íslenskri krónu í þeim tilgangi að hagnast á vaxtamuninum milli Íslands og annarra landa.
Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira