Þriðju endurskoðun AGS ætti að vera að ljúka 23. júlí 2009 13:02 Franik Rozwadowski, fastafulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi.
Fyrsta endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hefur dregist von úr viti. Í upprunalegum áætlunum AGS sem kynntar voru í nóvember síðastliðnum átti henni að vera lokið í febrúar, annarri endurskoðun átti að ljúka í maí og þeirri þriðju ætti að vera að ljúka um þessar mundir. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að af þessu megi sjá að gríðarlegar tafir hafa orðið á efnahagsáætluninni frá því sem upprunalega var lagt upp með. Í febrúar síðastliðnum fór reyndar fram formleg endurskoðun og komu fulltrúar sjóðsins hingað til lands til að kynna sér aðstæður og safna gögnum líkt og venjan er þegar endurskoðanir fara fram. Hinsvegar kom aldrei út nein formleg samantekt um endurskoðunina né voru niðurstöður hennar lagðar fyrir stjórn AGS til samþykktar eins og venjan er í ferli sem þessu og reynslan er með önnur ríki sem eru í samstarfi við sjóðinn. Þegar allt gengur vel er skýrsla sendinefndar jafnan birt tæpum mánuði eftir að heimsókn lýkur og lánið afgreitt í stjórn AGS skömmu síðar. Formaður fjárlaganefndar Alþingis hefur sagt að fyrsta endurskoðunin eigi að hefjast formlega þann 1.ágúst næstkomandi. Alls gerir sjóðurinn ráð fyrir átta endurskoðunum á þeim tveimur árum sem efnahagsáætlunin nær til. Sé framvinda efnahagsmála hér á landi fullnægjandi að mati sjóðsins verður annar hluti láns AGS að upphæð 155 milljónir dollara afgreiddur auk fyrsta hluta láns Norðurlandanna að upphæð 445 milljónir evra. Verður þessum fjármunum ráðstafað í uppbyggingu gjaldeyrisvarasjóðs seðlabankans sem mun í kjölfarið aukast um sem því nemur eða um jafngildi u.þ.b. 100 milljarða kr. Efling gjaldeyrisforðans er nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að hefja afléttingu gjaldeyrishafta en áætlanir gera ráð fyrir að það gæti orðið úi fyrsta lagi seint á þessu ári samkvæmt yfirlýsingum talsmanna Seðlabanka, AGS og stjórnvalda. Gera má ráð fyrir að verulega muni ganga á forðann þegar höftin verða afnumin. Margt af því sem áður tafði afgreiðslu AGS hefur nú verið leyst sem ætti að liðka fyrir langþráðri fyrstu endurskoðun. Mikilvægir áfangar hafa náðst í endurskipulagningu bankakerfisins og mun endurfjármögnun þeirra að hálfu ríkisins vera lokið þann 15. ágúst næstkomandi. Eini óvissuþátturinn sem eftir stendur er Icesave en á þessari stundu er alls óvist hvenær og hvort Alþingi muni samþykkja frumvarp fjármálaráðherra um ríkisábyrgð vegna Icesave samningsins. Ljóst er að gríðarlega mikilvægt er að efnahagsáætlun stjórnvalda og AGS nái fram að ganga. Allar frekari tafir þar á munu draga úr trúverðugleika áætlunarinnar, tefja fyrir endurreisn hagkerfisins og seinka því ferli að aflétting gjaldeyrishafta geti hafist.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira