Kaupþing með Haga í gjörgæslu Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 22. ágúst 2009 09:25 Merki Kaupþings Mynd/Björn Þór
Nýja Kaupþing er með þriggja manna teymi sérfræðinga á sviði útlána og fyrirtækjaráðgjafar starfandi í Högum. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins er hlutverk sérfræðinganna að vernda hagsmuni bankans og leggja mat á verðmæti eigna félagsins. Bankinn er með veð í 95,7 prósenta hlut í Högum eftir að eignarhaldsfélag Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu, 1998 ehf., tók 30 milljarða króna lán hjá bankanum til að kaupa Haga af Baugi. Ef 1998 ehf. getur ekki greitt lánið getur Nýja Kaupþing gengið að veðinu og tekið yfir þau fyrirtæki sem starfa innan móðurfélagsins Haga og áður mynduðu innlenda starfsemi Baugs. Lánið er með einum gjalddaga árið 2010. Bankanum mun af þessum sökum vera heimilt að hafa sérfræðingana starfandi innan fyrirtækisins. Bankinn er sem stendur að meta hvaða aðgerða eigi að grípa til ef 1998 ehf. getur ekki staðið í skilum, samkvæmt heimildum blaðsins. Þessu vísar Finnur Árnason, forstjóri Haga, á bug í samtali við Morgunblaðið og segir sérfræðinga Kaupþings vera að fara yfir bókhaldið vegna svokallaðs virðisrýrnunarprófs. Hann segir Capacent hafa séð um prófið undanfarin ár, en nú sé það fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings. Kaupþing hafi einfaldlega gefið hagstæðasta tilboðið í verkið, en prófið sé framkvæmt að beiðni endurskoðenda fyrirtækisins. Hagar er móðurfélag fyrirtækja á borð við Bónus, Hagkaupa, 10-11, Útilíf og tískuverslanirnar Zara, Debenhams, Topshop, Oasis og fleiri.
Tengdar fréttir Keypti Haga á 30 milljarða Fjárfestingarfélagið Gaumur, sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu, fékk þrjátíu milljarða króna lán til að kaupa 95 prósenta hlut í Högum af Baugi Group í gegnum félagið 1998 ehf. 1. ágúst 2009 14:42 Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Fleiri fréttir Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Sjá meira
Keypti Haga á 30 milljarða Fjárfestingarfélagið Gaumur, sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu, fékk þrjátíu milljarða króna lán til að kaupa 95 prósenta hlut í Högum af Baugi Group í gegnum félagið 1998 ehf. 1. ágúst 2009 14:42