Góður gangur hjá Opin kerfi ehf. 15. apríl 2009 16:20
Opin kerfi ehf. hafa sent frá sér tilkynningu vegna frétta um Opin Kerfi Group hf. í gærdag. Í tilkynningunni segir að góður gangur sé í rekstri Opinna kerfa ehf. og að reksturinn á fyrsta ársfjórðungi ársins hafi gengið mjög vel. Tilkynningin hljóðar svo: „Til að fyrirbyggja misskilning í kjölfar fréttaflutnings um Opin kerfi Group hf. þar sem húsnæði og vörumerki Opinna kerfa ehf. birtast, vilja forráðamenn Opinna kerfa ehf. koma því á framfæri að í október 2007 keypti eignarhaldsfélag í eigu Frosta Bergssonar, Opin kerfi ehf. af Opin kerfi Group hf. Eignarhaldsfélag Frosta Bergssonar fer í dag með ráðandi hlut og aðrir eigendur eru Skipti hf. og starfsmenn Opinna kerfa ehf. Hjá félaginu starfa 95 starfsmenn. Rekstur félagsins á fyrsta ársfjórðungi 2009 gekk mjög vel og náði félagið metnaðarfullum markmiðum sínum. Í árferði því sem nú ríkir reynir á aðlögunarhæfni félaga, traust tengsl við lykilbirgja, náið samstarf við viðskiptavini og viljann til að vera í sigurliðinu. Árangur Opinna kerfa ehf. ber fyrst og fremst að þakka samstilltum hópi starfsmanna og eigenda sem snúið hafa bökum saman og varið kjarnafærni félagsins með það að markmiði að skapa virði fyrir alla hagsmunaaðila. Slíka auðlind er vandasamt að afrita og því miður að sterk vörumerki Opinna kerfa ehf. og HP hafi verið tengd umfjöllun um félag sem er þeim alls ótengt. Stjórn og starfsmenn gera sér grein fyrir að um langhlaup er að ræða og í endamarkið komast þeir fyrstir sem hafa þarfir viðskiptavina í forgrunni og veita þeim framúrskarandi þjónustu byggða á réttu lausnaframboði. Hlutverk lykilbirgja í umrótinu er afar mikilvægt og stuðningur þeirra við félagið hefur endurspeglast í hagstæðu vöruverði, skilvirku vöruflæði og sveigjanlegum fjármögnunarleiðum."
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira