Viðskipti innlent

6 milljarða króna hagnaður hjá Landsvirkjun

Gunnar Örn Jónsson skrifar
Samkvæmt rekstrarreikningi samstæðu Landsvirkjunar, skilaði samstæðan 47,3 milljóna dollara hagnaði fyrstu sex mánuði ársins 2009 eða um 6 milljörðum króna á núverandi gengi en starfrækslugjaldmiðill Landsvirkjunar er dollar. Landsvirkjun segir lausafjárstöðu fyrirtækisins góða og að fjármögnun sé tryggð út árið 2011.

Handbært fé frá rekstri nam rúmlega 103,6 milljónum dollara og eigið fé í lok tímabilsins nam rúmlega 1,4 milljörðum dollara.

Tekjur samstæðunnar námu 139 milljónum dollara á tímabilinu en voru 239,6 milljónir dollarar á sama tímabili á síðasta ári. Handbært fé frá rekstri nam rúmlega 103,6 milljónum dollara og eigið fé í lok tímabilsins nam rúmlega 1,4 milljörðum dollara.

Á heimasíðu Landsvirkjunar kemur fram að minnkun tekna stafar einkum af lækkun álverðs, sem var mjög hátt á fyrri helmingi síðasta árs en álverð hefur lækkað mikið síðan þá. Einnig segir á heimasíðunni að lækkun krónunnar gagnvart dollar spili sinn þátt í minnkandi tekjum fyrirtækisins.



Áhættuvarnir skiluðu 40 milljón dollara tekjum á fyrstu sex mánuðum ársins


Tekjulækkunin hefur minni áhrif á afkomu fyrirtækisins en ætla mætti vegna áhættuvarna. Á tímabilinu janúar til júní 2009 fékk fyrirtækið greiddar 40 milljónir dollara frá erlendum fjármálastofnunum vegna álvarna en á sama tímabili 2008 greiddi fyrirtækið 35,7 milljónir dollara vegna áhættuvarnarsamninga.



Lausafjárstaðan góð og fjármögnun tryggð út árið 2011



Lausafjárstaða Landsvirkjunar er góð en í lok júní nam handbært fé tæplega 129 milljónum dollara. Fyrirtækið hefur einnig aðgang að 308 milljóna dollara veltiláni sem fyrirtækið getur nýtt sér hvenær sem er. Sjóðsstaða að viðbættu ónotuðu bankaláni í lok júní nam því samtals 437 milljónum USD. Fyrirtækið hefur þannig tryggt sér fjármögnun út árið 2011.

Til að tryggja enn frekar lausafjárstöðu Landsvirkjunar hafa fyrirtækið og ríkissjóður gert sérstakan viðbúnaðarsamning. Samningurinn er þannig að Seðlabankinn mun afhenda fyrirtækinu erlendan gjaldeyri og Landsvirkjun afhenda bankanum krónur eða skuldabréf í staðinn en þó því aðeins að fyrirtækið hafi áður fullreynt allar aðrar fjármögnunarleiðir.

Fjárhæð samningsins er að hámarki 300 milljónir dollara og rennur hann út 1. júlí 2011.

Í lok júní námu heildareignir fyrirtækisins tæplega 4,6 milljörðum dollara og eiginfjárhlutfall var 31,2%.

Á heimasíðu Landsvirkjunar segir ennfremur að horfur um rekstur Landsvirkjunar séu allgóðar fyrir allt árið 2009, einkum ef álverð helst á því bili sem nú er, en álverð hefur hækkað verulega frá því að það fór lægst í mars síðastliðnum.

Gengisþróun og þróun álverðs munu þó sem fyrr ráða miklu um afkomu ársins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×