Spáir lítilsháttar lækkun á verðbólgunni í júlí 11. júlí 2009 18:21
Gangi spá hagfræðideildar Landsbankans eftir verður 12 mánaða verðbólga 11,6% í júlí og lækkar úr 12,2% í mánuðinum á undan. 12 mánaða verðbólga hefur ekki verið lægri frá því í mars 2008. Fjallað er um spána í Hagsjá, vefriti deildarinnar. Þar segir að í mælingunni nú má búast við nokkurri lækkun á fatnaði og skóm vegna þess að sumarútsölur eru nú hafnar í mörgum verslunum. Spáin gerir einnig ráð fyrir hóflegum áhrifum til lækkunar vegna fasteignaliðarins líkt og í síðasta mánuði. Á móti vegur þó nokkur verðhækkun á eldsneyti sem rekja má til skattahækkana á bensíni. Þá má búast við hækkun á ýmsum öðrum innflutningsvörum s.s. matvöru og bifreiðum. Útsölur á fatnaði, skóm, heimilistækjum og húsgögnum draga mjög úr hækkun vísitölunnar (VNV) í júlímánuði. Útsölur í helstu verslunarmiðstöðvum hófust í kringum 8. júlí og skila sér því af töluverðum þunga inn í mælinguna nú. Von er til að föt og skór lækki um 10% frá fyrri mánuði en það jafngildir um 0,6% áhrifum til lækkunar VNV. Búast má við að hækkun á eldsneyti valdi um 0,25% hækkun á VNV í mánuðinum en að stærstum hluta er um er að ræða hækkun vegna skattabreytinga. Þessar verðbreytingar á bensíni komu ekki til framkvæmda strax eftir lagasetninguna vegna ríflegrar birgðastöðu olíufélaganna. „Krónan hefur lítið breyst síðastliðinn mánuðinn en gengisvísitalan hefur sveiflast á bilinu 230-235 undanfarnar vikur. Síðastliðna fjóra mánuði hefur krónan þó veikst um 20% en aðeins lítill hluti þeirrar veikingar hefur enn sem komið er skilað sér út í innlent verðlag og því teljum við að í mælingunni nú muni verð á ýmsum innfluttum vörum, s.s. matvöru og bifreiðum, halda áfram að hækka. Ljóst er að minnkandi eftirspurn ætti að öllu jöfnu að draga úr svigrúmi til hækkana og eigum við því aðeins von á hóflegum hækkunum á þessum liðum," segir í Hagsjánni. Ennfremur er tekið fram að áhrif fasteignaverðs á VNV hafa verið mjög sveiflukennd að undanförnu. Það sem af er ári hefur mánaðarbreytingin á fasteignaliðnum sveiflast á milli þess að lækka um 4,9% í mars í að hækka um 1,4% í maí, aðeins tveimur mánuðum síðar. Fasteignaverð er því um þessar mundir enn stærsti óvissuþátturinn í verðlagsþróuninni til skemmri tíma litið. Mikil óvissa er um áhrif fasteignaverðs þar sem sveiflur milli mánaða geta verið töluverðar en í spá okkar að þessu sinni gerum við ráð fyrir tæplega 1% lækkun reiknaðrar húsaleigu milli mánaða en það hefur rúmlega 0,1% áhrif til lækkunar á VNV. Þegar til lengri tíma er litið er þó viðbúið að lækkun fasteignaverðs sé ekki gengin yfir og að fasteignaverð muni halda áfram að lækka næsta kastið.
Mest lesið „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira