Áfram niðursveifla á íbúðaverði í höfuðborginni 20. maí 2009 11:51
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 2,6% milli mars og apríl samkvæmt upplýsingum sem Fasteignaskrá Íslands birti í gær. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur samkvæmt vísitölu Fasteignaskrár lækkað samfellt undanfarna níu mánuði og nemur lækkunin á þeim tíma samtals 10%. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að mikill viðsnúningur hefur nú orðið á íbúðamarkaði sem einkennist af mun minni umsvifum og veltu en áður sást og þá hefur tímabil verðlækkana leyst af hólmi tímabil gríðarlega verðhækkana sem einkenndu undangengna uppsveiflu. Frá því að húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu náði toppi í lok árs 2007 hefur það lækkað um 12% að nafnvirði og 26% að raunvirði. Nú þegar er því kominn fram um það bil helmingur þeirrar raunverðslækkunar sem Seðlabankinn spáir að verði á íbúðamarkaði frá árslokum 2007 og fram til ársloka 2010 en á því tímabili spáir Seðlabankinn að íbúðaverð muni lækka um 46% að raunvirði. Greiningin gerir ráð fyrir viðlíka lækkun og spá Seðlabankans og gerum ráð fyrir að íbúðaverð muni lækka um 20% að nafnverði á þessu ári, en um það bil helmingur þeirrar lækkunar er nú þegar kominn fram, og að íbúðaverð lækki svo um 10% til viðbótar á næsta ári. Þetta samsvarar því að íbúðaverð komi til með að lækka um tæplega helming að raunvirði frá toppi og þar til áhrifa fjármálakreppunnar og fylgifiska hennar hætti að gæta á íbúðamarkaði í árslok 2010 sem er sama niðurstaða og Seðlabankinn gerir ráð fyrir. Í ljósi þeirra efnahagsaðstæðna sem nú ríkja er lækkun á íbúðamarkaði óhjákvæmileg. Reynslan sýnir að hagkerfi sem lenda í viðlíka áföllum og fjármálakreppu ganga í kjölfarið í gegnum tímabil verðlækkana húsnæðis. Yfirleitt varir niðursveiflan á húsnæðismarkaði í tvö ár í kjölfar fjármálakreppu en útlit er fyrir að niðursveiflan verði allt að 3 ár hér og muni því taka lengri tíma en annars staðar.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira