Töluvert dregur úr tapi Bakkavarar milli ára 20. maí 2009 08:59
Tap Bakkavarar á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 8,1 milljónum punda, eða rúmum 1,5 milljarði kr. á tímabilinu samanborið við 12,8 milljóna punda tap á sama tímabili í fyrra. Velta nam 410 milljónir punda á fyrsta ársfjórðungi, sem er 9% aukning m.v. sama tímabil í fyrra. Handbært fé frá rekstri fyrir skatta, vexti og einskiptiskostnað vegna hagræðingaraðgerða, nam 1,3 milljón punda á fyrsta ársfjórðungi 2009, samanborið við 6,4 milljónir punda á fyrsta ársfjórðungi 2008. „Við náðum góðri söluaukningu á fyrsta fjórðungi ársins miðað við núverandi efnahagsaðstæður, en aukninguna má einkum rekja til sveigjanleika í framleiðslu félagsins, aukningar markaðshlutdeildar í Bretlandi og aukningar í Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum," segir Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar í tilkynningu um uppgjörið. „Þessi aukna sala sýnir vel styrk starfsemi okkar á samdráttartímum en við reiknum með að sala haldi áfram að aukast þrátt fyrir að hægist um í alþjóðahagkerfinu." Ágúst segir ennfremur að félagið geri ráð fyrir að fyrsti ársfjórðungur marki síðasta tímabil lækkunar á framlegð félagsins, nú þegar áhrifa af hagræðingaraðgerðum í rekstri félagsins hættir að gæta og þess að aðgerðir til að lágmarka áhrif verðhækkana á hráefni á reksturinn, auka hagkvæmni og hámarka nýtingu taki að skila bættri afkomu. „Félagið á enn í viðræðum við stærstu eigendur skuldabréfa Bakkavör Group hf., en stjórn félagsins er vongóð um að viðræðurnar muni skila árangri og að gjalddagi skuldabréfanna fáist framlengdur. Á fyrsta ársfjórðungi tilkynntum við að félagið hefði tryggt fjármögnun allra rekstrarfélaga samstæðunnar til næstu þriggja ára en þessir samningar sýna trygga fjárhagsstöðu rekstrarfélaganna," segir Ágúst.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira