Frávísunarkröfunni synjað - aðalmeðferð fer fram í haust 20. maí 2009 10:45 Jón Ásgeir Jóhannesson
Héraðsdómur Reykjavíkur synjaði í morgun frávísunarkröfu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og annarra vegna meintra skattalagabrota í Baugsmálinu svokallaða. Aðalmeðferð í málinu fer fram í haust. Í desember á síðasta ári gaf Ríkislögreglustjóri út ákæru á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Kristínu systur hans, Tryggva Jónssyni, Baugi og Gaumi fyrir meint skattalagabrot á árunum 1998 til 2002. Á meðal þess sem Jón Ásgeir er ákærður fyrir er að hafa komið sér undan því að greiða tæpar 30 milljónir króna í tekjuskatt, útsvar og fjármagnstekjuskatt. Þeir ákærðu í málinu vildu meina að rannsókn á Baugsmálinu hefði staðið óhæfilega lengi yfir auk þess sem ríkislögreglustjóri hefði ekki lagt sjálfstætt mat á rannsóknina. Einnig vildu þau meina að Helga Magnúsi Gunnarssyni saksóknara efnahagsbrota yrðir gert að víkja sæti við rannsókn málsins. Sú krafa var rökstudd með því að saksóknarinn hefði verið svo viðriðinn rannsókn svonefnds Baugsmáls allt frá upphafi þess að hann væri vanhæfur til að stýra rannsókn þessa máls. Héraðsdómur synjaði frávísunarkröfunni nú í morgun og fer aðalmeðferð í málinu fram í haust eins og fyrr segir.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira