Ríkissafn Íslandssjóða yfir 10 milljarða að stærð 20. maí 2009 08:37
Vel á annað þúsund aðilar, bæði einstaklingar og fagfjárfestar, hafa fjárfest í Ríkissafni Íslandssjóða fyrir rúma 10 milljarða króna frá stofnun hans í desember síðastliðnum.Í tilkynningu segir að Ríkissafnið fjárfestir eingöngu í ríkistryggðum skuldabréfum með stuttan líftíma og innlánum hjá fjármálafyrirtækjum. Með fjárfestingu í sjóðnum næst því góð eignadreifing milli þessara eignaflokka. Virk stýring er á sjóðnum og hann hefur sýnt góða ávöxtun frá stofnun. Sjóðurinn hentar vel fyrir þá sem vilja ávaxta fé sitt til þriggja mánaða eða lengur og halda sveiflum í ávöxtun í lágmarki.Mikil eftirspurn er eftir ríkistryggðum skuldabréfum um þessar mundir, sérstaklega þar sem Seðlabanki íslands hefur lækkað stýrivexti sína nokkuð ört síðustu mánuði. Við slíkar aðstæður, og í ljósi þess að vaxtalækkunarferlið er tiltölulega nýhafið, er að öllu jöfnu ákjósanlegt að eiga skuldabréf, þar sem lækkun ávöxtunarkröfu á markaði hækkar markaðsverðmæti skuldabréfa.Ríkisskuldabréf og sjóðir sem í þeim fjárfesta hafa því í mörgum tilfellum gefið betri ávöxtun en innlán á sama tímabili, að því er segir í tilkynningunni.Rekstraraðili Ríkissafnsins er Íslandssjóðir, dótturfélag Íslandsbanka, sem er leiðandi aðili í stýringu og rekstri íslenskra skuldabréfasjóða.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Allir Bónus vanilludropar innkallaðir Neytendur Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira