Bréfin ruku upp um 390 prósent 25. apríl 2009 07:30 Kári Stefánsson forstjóri deCode spáir því að á næstu árum muni einstaklingar nýta erfðapróf til að hanna eigin lífsstíl og draga úr líkum á erfðafræðilegum sjúkdómum. „
Þetta er afskaplega góður samningur og jafngildir því að erfðaprófin eru komin í hillu í mjög stórri búð," segir Kári Stefánsson, forstjóri deCode en fyrirtækið hefur selt bandaríska líftæknifyrirtækinu Celera rétt á notkun á þremur erfðaprófum sem meta líkurnar á áhættuþáttum á borð við hjartasjúkdóma og sykursýki. Kári segir samninginn skipta miklu fyrir fjárhagslega endurskipulagningu deCode sem staðið hefur yfir frá í fyrra. Celera greiðir við undirritun og fær deCode hlutdeild af framtíðartekjum vegna þessa. Kári reiknar með að fleiri samningar sem þessi eigi eftir að líta dagsins ljós á næstunni. „Innan fimm til tíu ára munu margir vilja eiga einstakan erfðafræðilegan prófíl til að hanna fyrir sig lífsstíl og draga úr líkum á að fá sjúkdóma sem þeir hafa tilhneigingu til að fá," segir hann. Fjárfestar tóku fréttunum afar vel en gengi bréfa í fyrirtækinu rauk úr sextán sentum á hlut á miðvikudag í 78 sent í fyrstu viðskiptum gærdagsins. Fyrir ári stóðu þau í um 1,6 dölum á hlut Gjaldeyrishöftin sem samþykkt voru á Alþingi undir lok síðasta árs hamla því að einungis þeir sem áttu hlutabréf eða fjáreignir erlendis áður en höftin tóku gildi geta keypt hlutabréf deCode. - jab
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira