Fitch Rating telur litlar líkur á að Alþingi hafni Icesave 19. júní 2009 10:29 Fitch telur litlar líkur á að Alþingi neiti Icesave samningnum.
Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Rating, telur mjög litlar líkur á að Alþingi Íslendinga neiti Icesave lánssamningnum þar sem mikill pólitískur vilji er í landinu í að koma hagkerfinu á réttan kjöl. Þetta er haft eftir Paul Rawkins, framkvæmdastjóra hjá Fitch Rating í London. Fitch metur lánshæfi íslenska ríkisins BBB- með neikvæðum horfum, einni einkunn fyrir ofan svokölluð rusl skuldabréf (Junk Bonds). Ríkisstjórnin hefur, eins og komið hefur fram í fjölmiðlum, boðað lækkun ríkisútgjalda og skattahækkanir til að draga úr fjárlagahalla ríkisins. „Skuldir almennings aukast hratt og kostnaðurinn við að reisa bankakerfið eykur á vandann. Við bíðum eftir að þessir hlutir skýrist áður en við ljúkum okkar mati á lánshæfiseinkunn ríkisins," segir Rawkins. „Það versta sem getur komið fyrir Ísland hefur þegar gerst. Bankakerfið hefur sprungið, gjaldmiðillinn hrapað og hagkerfið er á leiðinni í djúpa efnahagslægð," bætir Rawkins við. Ástæðan fyrir því að Ísland er enn með einkunnina BBB- er sú að ríkið hefur ekki enn lent í vanskilum á ríkisskuldabréfum. „Innlendir skuldabréfamarkaðir eru enn virkir en skuldir heimilanna eiga enn frekar eftir að auka á vandræði Íslendinga," segir Rawkins. Erlendir fjárfestar eiga, samkvæmt grein Bloomberg fréttaveitunnar, um 700 milljarða íslenskra króna. Þessar krónur eru hins vegar fastar á Íslandi þar sem gjaldeyrishöftum var komið á síðastliðið haust til að halda erlendu fjármagni inn í landinu. Tilgangurinn með höftunum var aðallega sá að koma í veg fyrir enn frekara hrun gjaldmiðilsins. „Því fyrr sem Íslendingar geta afnumið höftin, því betra fyrir þjóðina og hagkerfið í landinu. Það kemur að því að Íslendingar þurfa aðgang að erlendum fjármagnsmörkuðum," segir Paul Rawkins. Rawkins telur að raunhæft sé að áætla að losun gjaldeyrishafta hefjist á árinu 2010 og telur auk þess engar líkur á að uppgangur hagkerfisins hefjist fyrr en á næsta ári.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Allir Bónus vanilludropar innkallaðir Neytendur Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Hagnaður Kviku dróst saman Reitir féllu frá samstarfi við Art-verk Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Sjá meira