Gerir ekki ráð fyrir lækkun stýrivaxta í júlí 19. júní 2009 13:24 „
Nokkuð ljóst er því hvert stefnir með næstu vaxtaákvörðun peningastefnunefndarinnar sem verður mjög hófleg ef einver," segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem m.a. er rætt um fundargerð peningastefnunefndar sem birt var á heimasíðu Seðlabankans í gær. Greiningin segir að niðurstaða peningastefnunefndarinnar og áhersla á hóflega lækkun stýrivaxta eða jafnvel óbreytta vexti gefur vísbendingu um það sem koma skal á næsta vaxtaákvörðunardegi Seðlabankans sem er þann 2. júlí næstkomandi. Peningastefnunefndin leggur áherslu á gengisstöðugleika og frá síðustu vaxtaákvörðun er gengi krónunnar búið að lækka um 3,5%. Þá er stefnan sett á að afnám hafta geti hafist seint á þessu ári og er það vilji bankans að fara með vexti háa inní það ferli. Í fundargerðinni kemur fram að Seðlabankastjóri hafi í aðdragandi vaxtaákvörðunarinnar haldið fundi með bæði aðilum vinnumarkaðarins og fulltrúa Alþjóðagjaldeyrisjóðsins. Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins létu í maí mánuði opinberlega í ljós þá skoðun að ekki væru til staðar forsendur fyrir frekari lækkun stýrivaxta og að það væri beinlínis áhættusamt fyrir gengisstöðugleika að lækka vexti enn frekar. Töluvert annað hljóð hefur vaflaust verið í strokknum á fundinum með fulltrúum vinnumarkaðarins sem hafa ítrekað lagt til að vextir verði lækkaðir umtalsvert. Ljóst er af niðurstöðunni að ráðleggingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa fallið í töluvert frjórri jarðveg og að peningastefnunefndin hafi keypt rök AGS fyrir óbreyttum vöxtum en þau rök snúa aðallega að mikilvægi þess að raska ekki stöðugleika krónunnar við núverandi aðstæður í hagkerfinu.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira