Verðbólga hækkar í júní en fer síðan lækkandi 19. júní 2009 13:58 Frá höfuðstöðvum Kaupþings.
Greining Kaupþings spáir 1,1% hækkun vísitölu neysluverðs í júní og hækkar þá tólf mánaða verðbólga upp í 11,9%, úr 11,7% mánuðinn á undan. Tólf mánaða verðbólga mun hinsvegar lækka á ný í júlí og halda áfram að lækka það sem eftir lifir árs, jafnvel þótt krónan haldi áfram að veikjast. Verðlag án húsnæðis hækkar um 1,2%. Þetta kemur fram í markaðspunktum Kaupþings. Ástæðan fyrir verðbólguspánni á rætur sínar að rekja til veikingu krónunnar, hækkun opinberra gjalda og hærra heimsmarkaðsverði á eldsneyti. Þótt krónan veikist aðeins um fáein prósent milli mánaða verður ekki framhjá því horft að gengisvísitalan hefur hækkað um 50% síðastliðna tólf mánuði og um 20% á síðustu þremur mánuðum. Núverandi verðlagning í landinu hefur að einhverju leyti byggt á væntingum um að gengisstyrking krónunnar á fyrstu mánuðum ársins yrði varanleg, sú styrking var hinsvegar aðeins tímabundin og er verðlagning í auknum mæli að taka mið af þeirri staðreynd. Af einstökum undirliðum vísitölunnar má nefna eftirfarandi: Áfengi og tóbak munu hækka vísitölu neysluverðs um 0,25-0,30% vegna hækkunar opinberra gjalda á þessa liði. Eldsneyti hækkar vísitöluna um 0,25% í júní, einkum vegna hækkunar á heimsmarkaðsverði. Í júlí má búast við um 0,3% hækkun vísitölunnar í viðbót vegna gjaldahækkunar hins opinbera á eldsneyti. Gert er ráð fyrir að húsnæðisliðurinn hafi 0,1% áhrif til lækkunar vísitölunnar að þessu sinni. Eins og reynsla síðustu mánaða sýnir er þessi liður gríðarlega sveiflukenndur og hafa þessar sveiflur ráðið lang mestu um heildarniðurstöðu verðlagsmælingar Hagstofunnar að undanförnu. Gert er ráð fyrir um 1% hækkun matvöruverðs í júní og að liðurinn hækki því vísitöluna um u.þ.b. 0,15%. Þetta er álíka hækkun og í maí en þá hækkaði matvöruverð á ný eftir að hafa lækkað tvo mánuði þar á undan. Auknir neysluskattar ríkisins hafa áhrif á verðlag Hluti af aðgerðum ríkistjórnar til að auka tekjur ríkissjóðs er að færa ákveðna matvöruflokka upp um virðisaukaskattsþrep. Talið er að aðgerðirnar, sem áætlað er að skili 2,5 milljörðum króna á ári í ríkiskassann, muni valda 0,25% hækkun vísitölu neysluverðs. Þessar breytingar taka gildi 1. september nk. og munu því koma fram í septembermælingu vísitölu neysluverðs.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira