Skilanefndir vilja skipta Existu upp í sjálfstæðar einingar 26. maí 2009 10:16
Stjórnendur Exista og stærstu kröfuhafar félagsins deila nú um framtíð félagsins. Skilanefndir bankanna ásamt Nýja Kaupþingi mynda stærsta hóp kröfuhafa og vilja að Exista verði skipt upp í sjálfstæðar einingar. Þetta myndi þýða að félög á borð við VÍS, Símann og Lýsingu yrðu tekin út úr Exista og rekin sem sjálfstæð fyrirtæki með eigin yfirstjórnir. Telja kröfuhafarnir að með þessu sé hægt að hámarka andvirði eignanna betur en ef núverandi fyrirkomulagi er haldið áfram. Málið mun hafa verið rætt við erlenda kröfuhafa Exista sem einkum eru bankar og fjármálastofnanir í London. Stjórn Exista er alfarið á móti þessum hugmyndum og telur hag félagsins betur borgið ef fyrrgreind fyrirtæki verði áfram innan Exista. Nokkur bréfaskrif hafa verið milli aðila en engin niðurstaða fengin. Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis segir að menn séu einfaldlega að leita að bestu leiðunum til að hámarka andvirði eigna Exista. Ekki standi til að selja neitt af eignunum við núverandi markaðsaðstæður. „Menn eru að skoða ýmsa möguleika og væntanlega finnst einhver lausn á málinu bráðlega," segir Árni en vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Skilanefnd Kaupþings vill heldur ekki tjá sig um málið og svarar fyrirspurn á þá leið að nefndin tjái sig ekki um viðskipti einstakra aðila og telji þetta Exista-mál vera þess eðlis.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira