Straumur mun taka West Ham yfir Helga Arnardóttir skrifar 26. maí 2009 19:30
Straumur ætlar að taka West Ham United yfir á næstu dögum. Félagið hefur verið í eigu Björgólfs Guðmundssonar síðustu þrjú ár. Beðið verður með að selja félagið þar sem viðunandi verðtilboð hefur ekki borist. Straumur er stærsti kröfuhafinn í félaginu Hansa sem á West Ham og á um tvö þriðju af öllum kröfum í félaginu. Unnið hefur verið að því frá því í nóvember, skömmu eftir bankahrunið að selja fótboltaklúbbinn. Fjölmargir hafa sýnt honum áhuga en ekki hefur fengist ásættanlegt verð fyrir hann samkvæmt heimildum fréttastofu. Meðal annarra íslenskra kröfuhafa í Hansa eru Byr, MP banki og Landsbanki. Ákveðið var fyrir nokkru að hætta við að selja klúbbinn og Straumur tæki yfir eignarhaldsfélag hans fyrir hönd allra kröfuhafa. Félagið Hansa er í greiðslustöðvun fram til 8.júní. Björgólfur Guðmundsson er formaður stjórnar West Ham og rambar nú á barmi gjaldþrots. Þá er Ásgeir Friðgeirsson varaformaður stjórnar klúbbsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu er líklegt að þeir víki úr stjórn klúbbsins taki Straumur hann yfir. Ásgeir vildi ekkert staðfesta í þessum efnum en sagði formlegt söluferli enn í gangi. Fjármálaeftirlitið tók Straum yfir í febrúar síðastliðnum. Unnið hefur verið að því að selja allar hans eignir en þeim eignum sem ekki seljast á ásættanlegu kaupverði vegna efnahagsástandsins, verður haldið þangað til viðunandi verð fæst fyrir þær. Talsmenn Straums vildu ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Ekki náðist í Reyni Vigni formann Skilanefndar Straums.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira