Pistill: Líkur minnka á umfangsmikilli stýrivaxtalækkun Friðrik Indriðason skrifar: skrifar 26. maí 2009 13:34
Margt bendir nú til að líkur á umfangsmikilli stýrivaxtalækkun, það er 2-3 prósentustig, fari minnkandi með hverjum deginum sem líður. Að vísu hefur greining Íslandsbanka sent frá sér stýrivaxtaspá upp á lækkun um 2 prósentustig. Telja verður þá spá í bjartsýnna lagi enda gerir greiningin sjálf fyrirvara við hana. Greining Kaupþings fjallaði um málið í Markaðspunktum sínum og vitnaði þar til setningar úr fundargerð peningamálastefnunefndar sem birt var í síðustu viku. Setningin hljóðar svo: „Lækkun stýrivaxta getur þó aðeins komið til hafi trúverðug áætlun um aðgerðir stjórnvalda varðandi fjármálastefnuna litið dagsins ljós." Þetta er lykilsetning í fundargerðinni og skiptir miklu máli að mati greiningarinnar. „Greiningardeild telur athyglisvert að þessari setningu skuli hafa verið sleppt í yfirlýsingu peningastefnunefndarinnar á vaxtaákvörðunardeginum og veltir því fyrir sér hvort henni hafi jafnvel verið bætt inn í fundargerðina eftir á," segir í punktunum. „Eftir að sendifulltrúi IMF lýsti því yfir opinberlega að ekki væri svigrúm til frekari vaxtalækkana...Með þessari setningu í fundargerðinni er nú formlega búið að hnýta saman gagnrýni IMF og Seðlabankans á stjórnvöld." Ennfremur segir að boltinn sé nú alfarið í höndum stjórnvalda og aðeins 10 dagar í næstu stýrivaxtaákvörðun. Greining Íslandsbanka gerir þetta einnig að umtalsefni í sinni spá og bendir á að yfirlýsing peningastefnunefndar um væntanlega umfangsmikla stýrivaxtalækkun nú þann 4. júní n.k..." byggði einnig á þeirri forsendu að aðhald í ríkisfjármálum yrði aukið núna í sumar með verulegum niðurskurði útgjalda, hækkun skatta og öðrum tekjuaukandi aðgerðum. Áætlun ríkisstjórnarinnar um þetta hefur enn ekki litið dagsins ljós." Það eru ekki margir sem hafa trú á því að fyrrgreind áætlun ríkisstjórnarinnar muni líta dagsins ljós fyrir næstu vaxtaákvörðun peningastefnunefndarinnar. Raunar er þetta sem og önnur markmið í upphaflegri tímaáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) enn óuppfyllt. Hvað þetta varðar má nefna að nú átti m.a. að vera lokið endurfjármögnun bankakerfisins, endurskipulagningu regluverks fjármálakerfisins, áætlun um endurheimtur eigna og áætlanir um endurskipulagningu ríkisfjármála til næstu ára. Ekkert af þessu liggur fyrir. Þá er einnig bent á að hin höfuðforsendan fyrir umfangsmikilli vaxtalækkun var að gengi krónunnar héldist stöðugt. Það hefur hinsvegar veikst um tæp 5% frá síðustu ákvörðun sem vart verður túlkað sem merki um stöðugleika. En fulltrúi AGS lét hafa það eftir sér um daginn að ekki væri efni til frekari stýrivaxtalækkunar í bráð. Þetta olli talsverðum titringi í þjóðfélaginu og m.a. sagði Svein Harald Öygard seðlabankastjóri af því tilefni að peningastefnunefnd tæki sjálfstæðar ákvarðanir.Það er því augljóst að stýrivextir verða lækkaðir þann 4. júní hvað sem tautar og raular. Ekki er hinsvegar raunsætt að gera ráð fyrir að sú lækkun verði meiri en í kringum eitt prósentustig.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira