Gengisfall og húsnæðisverð hækka vísitölu neysluverðs 26. maí 2009 11:55
Gengisfall krónu ásamt viðsnúningi í þróun húsnæðisverðs eru helstu ástæður verulegrar hækkunar vísitölu neysluverðs (VNV) í maí. Samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar hækkaði vísitalan um 1,13% í maí. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þetta sé talsvert meiri hækkun en spár á markaði hljóðuðu upp á, en greiningin hafði spáð 0,4% hækkun í mánuðinum. Verðbólga lækkar því lítillega, úr 11,9% í 11,6%. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði hins vegar um 1,44% í maí og mælist verðbólga nú 15,5% á þann kvarða. Líkt og gert ráð fyrir hækkaði eldsneyti talsvert milli mánaða, eða um 4,9% (0,22% áhrif í VNV). Liðurinn ferðir og flutningar hækkaði hins vegar á heildina litið um 4,4% (0,55% áhrif í VNV), fyrst og fremst vegna 23% hækkunar á flugfargjöldum til útlanda og tæplega 5% hækkunar á verði nýrra bifreiða. Matur og drykkur hækkaði um 0,8% á milli mánaða (0,11% í VNV), föt og skór um 0,7% (0,04% í VNV) og húsgögn og heimilisbúnaður um 1,16% (0,09% í VNV). Þá hækkaði áfengi og tóbak um 1,3% (0,04% í VNV).Framangreindir liðir eru allir mjög innflutningsdrifnir og er hækkun þeirra nú heldur meiri en greiningin hafði gert ráð fyrir. Gengisþróun krónu skýrir því að langmestu leyti hækkun í þessum liðum. Frá annarri viku marsmánaðar hefur gengi krónu lækkað um 19% eftir styrkingarhrinu í upphafi árs. Auk þess eru enn að koma fram síðustu áhrif frá gengishruni síðasta hausts í þeim liðum VNV sem hægast bregðast við gengisbreytingum.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira