Vildi binda atkvæðarétt við óveðsetta hluti 26. maí 2009 12:11
Einn af hluthöfum Exista tók til máls á hluthafafundinum í morgun og lagði fram tillögu þess efnis að atkvæðaréttur í félaginu verði bundinn við það skilyrði að hlutafé sé ekki veðsett. Hluthafinn segist hafa ásamt fjölskyldu sinni keypt hlutabréf fyrir sparnað sinn síðustu tvo áratugi. Hann segist hafa heillast af hugmynd Alberts Guðmundssonar, þáverandi fjármálaráðherra, um að hlutabréfafjárfesting sé góð leið til að styrkja hag íslenskra fyrirtækja og hagsmuni einstaklinga. Hann segir að á síðustu árum hafi komið fram fyrirferðamikill hópur sérkennilegra fjárfesta sem hafi kappkostað að kaupa hlutabréf, oftast gegn lánsfé. Hlutabréfin hafi svo verið veðsett til að kaupa enn stærri hluta. Tilgangurinn hafi verið að komast yfir bankastofnanir og fyrirtæki og til að hafa allan þann hag sem því fylgir. Engin langtímamarkmið séu í huga þessara manna. Til að bregðast við þessu lagði hann tillögu um að atkvæðaréttur hluthafa Exista takmarkist við það skilyrði að hlutaféð sé ekki veðsett. Tilgangur tillögu hans var að hans sögn að kappkosta að tryggja sem best hagsmuni smárra hlutafjáreigenda sem og lífeyrissjóða. Þá telur hann að með þessu sé hægt að treysta betur viðskiptasiðferði og koma í veg fyrir að Existu sé stjórnað með léttuð og ævintýramennsku, sem hann segir að raunin hafi verið. Tillagan var borin undir hluthafa á fundinum í morgun og var felld með miklum meirihluta.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira