Persónuafsláttur óbreyttur á næsta ári Ingimar Karl Helgason. skrifar 7. október 2009 18:55
Gert er ráð fyrir því í fjárlagafrumvarpinu að persónuafsláttur verði óbreyttur á næsta ári. Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambandsins, segir að samið hafi verið um hækkun skattleysismarkanna og verðtryggingu. Sambandið samþykki aldrei að skattleysismörkin verði lækkuð að raungildi. Alþýðusamband Íslands segir í öllum grundvallaratriðum vera sátt við áherslurnar í fjárlagafrumvarpinu. Þær séu enda í takti við það sem rætt var við stjórnvöld í sumar. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að fjárlögin nú, séu sennilega þau erfiðustu í sögu lýðveldisins og jafnvel þótt litið sé enn lengra aftur í tímann. Þetta hafi verið viðbúið, en ýmsilegt sé þó gagnrýnivert eins og frumvarpið er sett fram. Til að mynda, segir Gylfi að samið hafi verið við ríkið, raunar fyrri ríkisstjórnir, um tvö þúsund króna hækkun á perónuafslætti og áður um verðtryggingu persónuafsláttarins. Í fjárlagafrumvarpinu segir: „Í ljósi hins alvarlega efnahagsástands og þess að í fjárlagafrumvarpinu er hvorki um að ræða hækkun á grunnfjárhæðum bótakerfanna né gert ráð fyrir hækkun á launum ríkisstarfsmanna, verður persónuafsláttur ekki hækkaður milli ára." Gylfi Arnbjörnsson, segir þetta vera leið sem samtökin hafni. „Við höfum lýst vilja til þess að koma að breytingu skattkerfis sem hafi það að markmiði að dreifa byrðunum, með þeim hætti að tekjulágum verði hlíft. Það gerir maður ekki með því að láta skattleysismörkin rýrna að verðgildi." Slíkt yrðu svik við launafólk í landinu. Gylfi nefnir einnig vaxta og barnabætur og gagnrýnir jafnframt hægagang í framkvæmdum, þar sem lífeyrissjóðir launafólks hyggist leggja fé til verka í stað ríkisins, vegna ástandsins.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira