Álver gæti brætt 50% jöklabréfanna Friðrik Indriðason skrifar: skrifar 24. apríl 2009 10:41
Hugmyndir um að leysa töluverðan hluta jöklabréfavandans með því að skipta þeim yfir í skuldabréf í dollurum sem Norðurál (Century Aluminium) myndi gefa út eru komnar lengra á skrið en áður var talið. Hægt væri að losa um 50% útistandandi jöklabréfa ef þessar hugmyndir verða að veruleika. Samkvæmt heimildum Fréttastofu hefur stjórn Norðuráls áhuga á að skoða þessa leið náið og hefur verið með málið á borði sínu um nokkurt skeið. Vandamálið hefur aðallega legið í því að finna út hverjir séu eigendur jöklabréfanna í augnablikinu. Dæmið lítur nokkurn veginn þannig út að heildarkostnaður við byggingu álversins í Helguvík liggur nú á bilinu 150 til 180 milljarðar kr. Talið er að innlendur hluti þess kostnaðar, sem greitt yrði fyrir í krónum sé um 40% eða rúmir 60 milljarðar kr. Útistandandi jöklabréf nú nema 116 milljörðum kr. enda hefur töluverðum hluta þeirra verið breytt í ríkisbréf á síðustu mánuðum. Norðurál er tilbúið að gefa út skuldabréf í dollurum upp að þessari upphæð, 60 milljarðar kr. til að standa straum af innlenda kostnaðinum. Skuldabréfin yrðu til nokkurra ára og ekki byrjað að borga af þeim fyrr en rekstur álversins í Helguvík væri kominn í gang og byrjaður að gefa af sér. Óformlegar samningaviðræður við hluta af eigendum krónubréfanna eru hafnar og samkvæmt heimildum Fréttastofu er vilji fyrir því af beggja hálfu að fara þessa leið. En það þarf að semja um á hvaða dollaragengi skiptin færu fram og hvaða vexti skuldabréfin eigi að bera. Samkvæmt heimildum Fréttastofu er Norðuráli umhugað um að ná hagstæðum kjörum hvað gengi og vexti varðar enda væri félagið að taka á sig gengisáhættuna í þessum viðskiptum. Stjórnvöld eiga hlut að málinu enda er þeim umhugað að fyrrgreind viðskipti fari fram þar sem slíkt myndi létta verulega á þrýstingnum sem verið hefur á gengi krónunnar undanfarnar vikur og útlit er fyrir að haldist í náinni framtíð. Svein Harald Øygard seðlabankastjóri kom inn á málið í ræðu sinni á síðasta ársfundi bankans. Þar sagði hann m.a. að Seðlabankinn meti nú sérstök úrræði sem gætu gert óþolinmóðustu erlendu fjárfestunum sem hafa verið bundnir af gjaldeyrishöftum kleift að skipta skuldabréfum sínum í íslenskum krónum með þeim hætti að ekki komi niður á gjaldeyrisforða bankans. Það sem Norðurál er með á prjónunum nú fellur að stefnu seðlabankastjóra og mun vinna vera á fullu í bankanum við að útfæra ýmsar leiðir til að koma jöklabréfunum í lóg án þess að það valdi verulegri niðursveiflu á gengi krónunnar. M.a. er unnið að því að koma á sambandi milli eigenda bréfanna og þeirra íslensku aðila sem hafa áhuga eða tök á að skipta bréfunum út án þess að slíkt hreyfi við gengi krónunnar.
Mest lesið Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira