Minni útgáfa íbúðabréfa í ár en áætlað var 30. júní 2009 13:52
Líklegt er að útgáfa íbúðabréfa reynist talsvert minni á þessu ári en áætlun Íbúðalánasjóðs (ÍLS) frá apríl síðastliðnum gerði ráð fyrir. Sjóðurinn sendi í morgun frá sér tilkynningu um að ekki yrði farið í frekari útgáfu íbúðabréfa á öðrum ársfjórðungi, enda verður botninn sleginn í fjórðunginn í lok dagsins í dag. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínui. Þar segir að ÍLS hafði áætlað að gefa út íbúðabréf fyrir 8 - 10 milljarða kr. á fjórðungnum, en þegar upp er staðið nemur útgáfan tæpum 7 milljörðum kr. Segir sjóðurinn að útlán hafi reynst minni á tímabilinu en ráð var fyrir gert og að lausafjárstaðan hafi verið góð. Von er á endurskoðaðri útgáfuáætlun ÍLS um miðjan næsta mánuð. Áætlunin frá í apríl gerði ráð fyrir að útgáfa ársins yrði á bilinu 33 - 38 milljarðar kr., og þar af yrðu 19 - 22 milljarðar kr. gefnir út á seinni hluta ársins. Greining telur að áætluð útgáfa verði minni í hinni endurskoðuðu áætlun, enda umsvif á íbúðamarkaði afar lítil um þessar mundir. Á fyrri hluta ársins voru gefin út íbúðabréf fyrir tæpa 13 milljarða kr. og er ekki úr vegi að ætla að útgáfan á seinni árshelmingi verði á svipuðum nótum. Minna framboð íbúðabréfa ætti að hafa áhrif til lækkunar á ávöxtunarkröfu þeirra, auk þess sem meira rými ætti að skapast fyrir aðra útgefendur verðtryggðra skuldabréfa að finna kaupendur að bréfum sínum á ásættanlegri kröfu.
Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira