Byr leggur niður póst, kúnnar spara 12.000 krónur 30. júní 2009 12:05
Frá og með mánaðamótunum júlí - ágúst hættir Byr sparisjóður að senda út með pósti yfirlit reikninga og kreditkorta ásamt greiðsluseðlum lána og kreditkorta. Viðskiptavinir Byrs fá eftir sem áður öll yfirlit rafrænt í gegnum heimabankann sinn. Í tilkynningu um málið segir að þegar tekið er dæmi af viðskiptavini sem hingað til hefur fengið yfirlit launareiknings fjórum sinnum á ári, kreditkortayfirlit mánaðarlega og einn annan greiðsluseðil á mánuði, þá er hann með nýja fyrirkomulaginu, þ.e. að fá þessar upplýsingar eingöngu í heimabankann sinn, að spara sér um 12.000 krónur á ári. „Sparnaðurinn sem af þessu hlýst er einnig í þágu umhverfisins því um talsverðan pappírssparnað er að ræða og pósturinn sem kemur inn um bréfalúguna minnkar. Pappírslaus viðskipti fela í sér bæði öruggari og einfaldari samskipti þar sem allar upplýsingar er að finna í heimbankanum sem viðskiptavinurinn einn hefur aðgang að," segir Atli Örn Jónsson, framkvæmdarstjóri Viðskiptabankasviðs hjá Byr. Breytingin nær til einstaklinga og fyrirtækja en engin breyting verður á útsendum pósti til ólögráða einstaklinga. Þeir viðskiptavinir sem vilja halda áfram að fá yfirlit og greiðsluseðla á pappírsformi geta sótt um það á www.byr.is, í næsta útibúi Byrs eða með því að hringja í síma 575 4000.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira