Betri tíð endurspeglast í löngum skuldabréfum 30. júní 2009 04:00 þróun mála skýrð Þórarinn G Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, skýrir væntingar um langtímaverðbólgu á vaxtaákvörðunarfundi bankans. Fréttablaðið/GVA
Skuldabréfaútgáfa Lánasýslunnar er næstum jafn mikil nú og gert var ráð fyrir á árinu öllu. Hagfræðingur hjá Seðlabankanum segir hinu opinbera hafa gengið vel að fjármagna sig með skuldabréfaútgáfu. „Það er mjög gott hvað ríkissjóði hefur gengið vel að fjármagna sig með útgáfu skuldabréfa," segir Björgvin Sighvatsson, hagfræðingur á alþjóða- og markaðssviði Seðlabankans. Hann segir að enn sé unnið eftir áætlun í lánamálum ríkissjóðs um útgáfu ríkisskuldabréfa frá því í janúar þrátt fyrir rúma 170 milljarða króna halla á ríkissjóði. Áætlunin í janúar var í samræmi við hreina fjárþörf ríkissjóðs þá, eða upp á 145 milljarða króna. Nú þegar árið er hálfnað er ríkissjóður búinn að gefa út skuldabréf fyrir 128 milljarða af þeim 145 sem fyrirhugað er að selja á árinu. Björgvin segir hluta af ástæðunni fyrir mikilli eftirspurn eftir ríkisbréfum þá að útgefendum skráðra skuldabréfa hafi fækkað og fáir kostir í boði. Þá bætir hann við að helstu væntingar um efnahagslífið til lengri tíma endurspeglist í nýrri útgáfu ríkisbréfa með gjalddaga árið 2025 en það er lengsti skuldabréfaflokkur sem Seðlabankinn hefur gefið út fyrir hönd ríkissjóðs. Björgvin bendir á að kaupendur þeirra bréfa vænta þess að verðbólga haldist að jafnaði lág fram til 2025 og að efnahagslífið verði nokkuð stöðugt þangað til. Þá verða Icesave-skuldbindingar hins opinbera greiddar upp, gangi allt eftir. „Það mikilvægasta er að þeir telja ekki mikla áhættu felast í fjárfestingu óverðtryggðra ríkisskuldabréfa með löngum líftíma," segir Björgvin.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira