Alcoa neitar spákaupmennsku með krónuna 30. júní 2009 15:15 Ál.
Alcoa Fjarðarál sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Fréttablaðsins um gjaldeyrisviðskipti fyrirtæksins á alþjóðlegum mörkuðum. Í yfirlýsingunni segir að Alcoa hafi aldrei stundað spákaupmennsku með íslensku krónuna. Þar segir ennfremur: „Alcoa Fjarðaál starfar í alþjóðlegu umhverfi, samkvæmt alþjóðlegum viðskiptasamningum og í nánu samráði við íslensk stjórnvöld, banka og raforkuframleiðendur." Lesa má yfirlýsinguna í heild sinni hér fyrir neðan: Vegna umfjöllunar fjölmiðla að undanförnu um gjaldeyrisviðskipti íslensku álfyrirtækjanna með krónur vill Alcoa á Íslandi taka eftirfarandi fram: Alcoa Fjarðaál starfar í alþjóðlegu umhverfi, samkvæmt alþjóðlegum viðskiptasamningum og í nánu samráði við íslensk stjórnvöld, banka og raforkuframleiðendur. Milli Alcoa á Íslandi og ríkisvaldsins gildir sérstakur fjárfestingasamingur og hefur starfsemi fyrirtækisins frá upphafi verið í samræmi við hann. Engin breyting varð þar á við bankahrunið á Íslandi né heldur við gildistöku reglna Seðlabankans varðandi viðskipti með krónur. Alcoa Fjarðaál hefur farið í einu og öllu eftir þeim reglum eins og bankinn getur staðfest. Frá upphafi starfsemi á Íslandi hefur fyrirtækið aldrei stundað spákaupmennsku með íslensku krónuna af neinu tagi. Alcoa á Íslandi hefur frá upphafi haft reglulegt samráð við Seðlabanka Íslands um tilhögun gjaldeyrisviðskipta sinna. Í vor var byrjað að ræða við bankann um að færa þau í auknum mæli til landsins. Stjórnendur Alcoa á Íslandi áttu fyrir helgina fund með seðlabankastjóra og fleiri stjórnendum bankans, þar sem Alcoa bauðst til að færa öll viðskipti sín með krónur til landsins. Alcoa er fjölþjóðlegt almenningshlutafélag og upplýsingar um rekstur þess eru háðar alþjóðlegum reglum um kauphallarviðskipti. Af þeirri ástæðu getur fyrirtækið ekki veitt opinberlega upplýsingar um gjaldeyrisviðskipti sín öðrum en þeim sem lög kveða á um.
Tengdar fréttir Milljarða gróði álfyrirtækja af gjaldeyrisbraski Alcoa Fjarðaál og Alcan á Íslandi hafa stundað viðskipti með krónur erlendis. Viðskiptin gætu skilað fyrirtækjunum 1,65 milljörðum króna í hagnað á ársgrundvelli. Viðskiptin geta seinkað styrkingu krónunnar. Um lögleg viðskipti er að ræða en Seðlabankastjóri segir hins vegar að undanþágur séu ekki ætlaðar til að fyrirtæki hagnist á þeim. 24. júní 2009 06:00 Álfyrirtæki braska með krónuna Tvö af þremur álfyrirtækjum hérlendis stunda viðskipti með krónur á erlendum mörkuðum. Fyrirtæki sem stunda þessi viðskipti geta hagnast á misræmi milli opinbers gengis Seðlabanka Íslands og gengis krónunnar á markaði í Evrópu. 23. júní 2009 06:00 Mest lesið Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Sjá meira
Milljarða gróði álfyrirtækja af gjaldeyrisbraski Alcoa Fjarðaál og Alcan á Íslandi hafa stundað viðskipti með krónur erlendis. Viðskiptin gætu skilað fyrirtækjunum 1,65 milljörðum króna í hagnað á ársgrundvelli. Viðskiptin geta seinkað styrkingu krónunnar. Um lögleg viðskipti er að ræða en Seðlabankastjóri segir hins vegar að undanþágur séu ekki ætlaðar til að fyrirtæki hagnist á þeim. 24. júní 2009 06:00
Álfyrirtæki braska með krónuna Tvö af þremur álfyrirtækjum hérlendis stunda viðskipti með krónur á erlendum mörkuðum. Fyrirtæki sem stunda þessi viðskipti geta hagnast á misræmi milli opinbers gengis Seðlabanka Íslands og gengis krónunnar á markaði í Evrópu. 23. júní 2009 06:00