Aðildarviðræðurnar við ESB gætu tekið 18 mánuði 27. júlí 2009 13:43
Miðað við reynslu annarra þjóða má reikna með að aðildarviðræður Íslands við ESB geti tekið allt að 18 mánuði. Um er að ræða ferli sem er í mjög föstum skorðum. Hinsvegar hefur komið fram vilji hjá ESB að stytta ferlið töluvert samkvæmt fréttum í morgun. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að samningaferli ESB fer alltaf eftir ákveðnu ferli. Samningaferlinu er skipt upp í 35 samningskafla eftir innihaldi. Fyrstu 34 kaflarnir fjalla um lagasafn ESB eftir köflum og síðasti samningskaflinn tekur yfir önnur mál og er sá kafli oftast nýttur til að hnýta niður lausa enda í samningaviðræðum. Líklegt er að samningaviðræður vegna fyrstu 20 kaflanna muni ganga fljótt fyrir sig enda eru þeir að mestu leyti uppfylltir með EES samningnum. Hinir kaflarnir muni líklega taka lengri tíma en búast má við að samningaviðræðurnar í það heila gætu tekið 9-18 mánuði. Það mat er byggt á reynslu annarra þjóða og yfirlýsingum helstu forsvarsmanna ESB sem hafa tjáð sig um mögulega aðild Íslands en þar er Olli Rehn sem fer með stækkunarmál í framkvæmdastjórn ESB fremstur í flokki. Stóra spurningin varðandi aðild Íslands að ESB er að mati margra hvenær hægt væri að taka upp evruna hér á landi. Að öllu jöfnu geta aðildarríki ESB tekið upp evruna þegar þau uppfylla Maastricht skilyrðin sem eiga að tryggja fjármálastöðugleika og að verðbólguhorfum á evrusvæðinu stafi ekki ógn af fjölgun aðildarríkja. Eins og staða og horfur eru í íslenska hagkerfinu um þessar mundir er ljóst að nokkur tími gæti liðið þar til við myndum uppfylla Maastricht skilyrðin en það eru fyrst og fremst skilyrðin varðandi halla á rekstri hins opinbera og heildarskuldir ríkisins sem myndu reynast okkur Þrándur í götu. Hinsvegar skal hafa í huga að heimilt er að gefa ákveðið svigrúm varðandi skilyrðin ef aðstæður eru sérstakar og sýnt þyki að þau verði uppfyllt fljótlega. Ýmsum möguleikum hefur verið velt upp sem gætu gert það að verkum að flýta upptöku evru eða í það minnsta leysa það fyrirkomulag gengismála sem nú er við lýði af hólmi þar til evran væri tekinn upp að fullu. Ísland gæti til dæmis reynt að semja um að fara í ERMII myntsamstarfið sem fyrst en þá væri miðgengi krónunnar gagnvart evru fest og krónunni leyft að víkja 15% til hvorrar áttar frá miðgildinu. Ísland gæti þá mögulega verið í ERMII lengur en þau tvö ár sem gerð eru skilyrði um samkvæmt Maastricht skilyrðunum.
Mest lesið Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira