Engar viðskiptaforsendur fyrir raforkuafslætti til garðyrkju 21. apríl 2009 11:47
Undanfarna daga hefur víða heyrst krafa um að garðyrkjubændur fái keypta raforku á sama verði og stóriðjan. Engar viðskiptalegar forsendur eru fyrir þessum algenga samanburði við stóriðjuna, sem heyrist svo víða annars staðar, að mati Samorku. Í tilkynningu frá Samorku um málið segir að garðyrkjubændur séu góðir viðskiptavinir orkufyrirtækja. Engu að síður er þessi samanburður þannig að sæmilega stór garðyrkjubóndi kaupir ekki einn þúsundasta af því orkumagni sem meðalstórt álver kaupir. Þá kaupir stóriðjan raforkuna í 24 klukkustundir á sólarhring og 365 daga á ári, alls um 8.760 klukkustundir á ári, skuldbundið til margra ára og jafnvel til áratuga. Garðyrkjubændur undirgangast engar slíkar skuldbindingar. Þeir nota gjarnan raforku til lýsingar í um 5.500 klukkustundir á ári. Raforku þarf að nota jafnóðum og hún er framleidd. Þess vegna eru mikil verðmæti í þessum stóru sölusamningum við stóriðjufyrirtækin. Ennfremur ber að nefna að dreifingin er gjarnan um þriðjungur af raforkuverði til fyrirtækja og heimila. Stóriðjan tekur hins vegar við orkunni beint af flutningskerfinu og greiðir því sjálf dreifingarkostnaðinn. Garðyrkjubændur hafa aftur á móti notið niðurgreiðslu úr ríkissjóði á dreifingunni, en nýleg ákvörðun um lækkun þeirrar niðurgreiðslu hefur verið gagnrýnd af þeirra hálfu. Umræðan um lægra raforkuverð til garðyrkjubænda er fyrst og fremst umræða um frekari og/eða áframhaldandi niðurgreiðslur á raforku til þeirra, úr ríkissjóði, og þannig hefur hún enda verið ágætlega sett fram af hálfu talsmanna garðyrkjubænda.
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira