SI segir verktakastarfsemi landsins að blæða út 23. júní 2009 08:53
Samtök iðnaðarins (SI) segja í nýrri ályktun að verktakastarfsemi landsins sé að blæða úr. Niðurskurður í vegagerð sé reiðarslag. SI skora á ríkisstjórnina að taka ákvörðun sína um 12 milljarða niðurskurð til samgöngumála til endurmats. Í ályktuninni segir að við núverandi aðstæður á alls ekki að hætta við allar framkvæmdir. Framkvæmdastigi á að halda í horfinu í lengstu lög. Samtök iðnaðarins telja brýnt að velja af kostgæfni verkefni sem eru mannaflsfrek og arðsöm og til þess fallin að auka samkeppnishæfni íslensk samfélags þegar fram í sækir. Þegar mest var störfuðu 16.000 manns í mannvirkjagerð. Árum saman voru 10 til 12 þúsund manns starfandi í greininni. En nú stefnir fjöldinn í einungis 4.000. Niðurskurður er óumflýjanlegur í okkar þjóðfélagi eins og staðan er orðin, en óþolandi er að hann bitni allur á mannvirkjagreinum. Þeim byrðum verður að dreifa og þar á opinber rekstur síst að vera undanskilinn. Mikilvægt er að sú mikla aukning á samneyslu sem orðið hefur frá árinu 2001 gangi til baka og forgangsraðað verði upp á nýtt í ríkisrekstri... Verktakastarfsemi hvers konar hefur orðið fyrir einna mestum búsifjum í kreppunni. Tölur um gjaldþrot fyrirtækja og gríðarlegt atvinnuleysi í greininni tala þar skýrustu máli. Það er því ótrúlegt að lesa fréttir um að Vegagerðin neyðist til að hætta við allar nýframkvæmdir vegna þess að ríkisstjórnin boðar niðurskurð upp á 3,5 milljarða á þessu ári og 8,2 milljarða á því næsta til vegagerðar. Með þessu er verið að dæma fleiri fyrirtæki til gjaldþrots og enn fleira fólk til atvinnuleysis. Þúsundir manna hafa þegar misst vinnuna undanfarna mánuði hjá fyrirtækjum eins og Ístak, ÍAV, Loftorku, Hlaðbæ-Colas, Klæðningu, Hektar, Háfelli, Ásberg, Nesprýði, - öll þessi fyrirtæki þurfa skýr svör fyrir 1. júlí um verkefnin framundan. Fyrir þann dag þarf að taka ákvörðun um hvort segja þurfi upp mörg hundruð starfsmönnum til viðbótar.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira